Brynjar segir að Björt framtíð sé ekki flokkur heldur „einhver hópur með engan súbstans“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerir lítið úr Bjartri fram­tíð eftir að flokk­ur­inn sleit sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn vegna „alvar­legs trún­að­ar­brests“. „Enda eru þetta oft ekki neinir flokkar, þetta er bara ein­hver hópur manna sem hefur ekk­ert bak­land og hefur ekk­ert súbstans,“ segir Brynjar.

Brynjar segir að Björt framtíð sé ekki flokkur heldur „einhver hópur með engan súbstans“
Brynjar Níelsson Er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem fer með mál­efni sem tengj­ast veit­ingu upp­reistar æru. Mynd: Pressphotos

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, gerði lítið úr Bjartri fram­tíð í morgun, eftir að stjórn­ar­fundur flokks­ins ákvað að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gær­kvöldi vegna leyndra eig­in­hags­muna flokks­ins í máli sem varðar upp­lýs­inga­gjöf og fram­kvæmd á veit­ingu upp­reist æru.

Brynjar sagði í við­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í morgun að varla væri um að ræða flokk, heldur hóp með „engan súbstans“. 

„Enda eru þetta oft ekki neinir flokkar“

„Menn stand­ast aldrei mót­byr, menn fara alltaf á taugum. Það er bara vanda­málið hjá sumum flokkum – að geta ekki staðið í lapp­irnar. Enda eru þetta oft ekki neinir flokkar, þetta er bara ein­hver hópur manna sem hefur ekk­ert bak­land og hefur ekk­ert súbstans til að standa í þessu og fer bara á taugum,“ sagði Brynjar í við­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í morgun. Þá sagð­ist hann telja að mark­mið Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar væri að hífa upp fylgið í hugs­an­legum kosn­ingum. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á að sitja með þetta í fang­inu. Þessir flokkar hafa engu að tapa, er það?“ 

Alvarlegur trúnaðarbrestur

80 manns eru í stjórn Bjartrar fram­tíðar, sem er bak­land þing­flokks­ins. 70 pró­sent stjórn­ar­manna tóku þátt í atkvæða­greiðslu um málið í gær. 87 pró­sent fund­ar­manna sam­þykktu í gær­kvöldi að slíta sam­starfi við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. „Stjórn Bjartrar fram­tíðar hefur ákveðið að slíta sam­starfi við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Ástæða slit­anna er alvar­legur trún­að­ar­brestur innan rík­is­stjórn­ar­innar.“

Brynjar sagði í morgun að ekki væri óeðli­legt að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra hefði látið Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra einan vita af því að faðir hans, Benedikt Sveins­sonar, hefði skrifað undir með­mæli fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson. „Að þetta verði til þess að menn gangi út úr stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn finnst mér mjög sér­stakt,“ segir hann. „Það hlýtur að vera ein­hver önnur ástæða í mínum huga.“

Brynjar sagði frá því í Kast­ljós­inu í gær að hann hefði verið verj­andi Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, sem Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, veitti með­mæli, án þess að upp­lýst væri um það.

Leynd umfram það sem lög heimila

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra, sem hefur verið gagn­rýnd harð­lega fyrir að ganga lengra en lög leyfa í því að við­halda leynd yfir með­mæl­endum, þar á meðal Benedikt Sveins­syni, föður for­sæt­is­ráð­herra, sagði í morgun að ákvörðun Bjartrar fram­tíðar að slíta sam­starfi við flokk hennar væri „stór­kost­legt ábyrgð­ar­leysi af hendi þessa litla flokks“.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völdum væri skylt að veita upp­lýs­ingar um hverjir væru með­mæl­endur dæmdra manna sem hefðu hlotið upp­reist æru. Áður hafði Sigríður Andersen sagt að engar slíkar upp­lýs­ingar yrðu veittar, og full­trúar rík­is­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, gengu út af fundi þegar upp­lýs­ingar þess efnis voru lagðar á borð nefnd­ar­innar. Brynjar Níelsson er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem fer með mála­flokk­inn.

Ráðuneytið svaraði ekki fyrirspurn um Benedikt

Stundin hafði lagt ítrek­aðar fyr­ir­spurnir til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um aðila tengdan for­sæt­is­ráð­herra, sem væri meðal þeirra val­in­kunnu manna sem veitt hefðu Hjalta Sig­ur­jóni Hauks­syni með­mæli til upp­reistar æru. 

Fyr­ir­spurn Stund­ar­innar var send 6. sept­em­ber, en ekk­ert svar fékkst þrátt fyrir ítrek­anir og þrátt fyrir að úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála hefði í milli­tíð­inni úrskurðað að ekki væri lög­legt að halda leynd yfir upp­lýs­ingum máls­ins: 

1. Tengist einn af umsagn­ar­að­ilum Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, vegna upp­reistar æru hans, for­sæt­is­ráð­herra nánum fjöl­skyldu­böndum? 

2.  a) Ef já, vissi dóms­mála­ráð­herra af fjöl­skyldu­tengsl­unum þegar ákveðið var að upp­lýsa ekki um nöfn umsagn­ar­að­ila þeirra sem fengið hafa upp­reist æru og að svara ekki fyr­ir­spurnum þolenda um málin?  b) Upplýsti for­sæt­is­ráð­herra aðra ráð­herra um tengsl sín við umsagn­ar­að­ila eins af umsækj­endum um upp­reist æru þegar málin voru afgreidd úr rík­is­stjórn á haust­mán­uðum 2016?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár