Ritstjóri segir að Bjarni hafi útilokað sig varanlega fyrir að gefa like

Bjarni Bene­dikts­son sagð­ist ætla að snið­ganga fjöl­miðla­mann­inn Sigurjón M. Egilsson var­an­lega, vegna þess að Sigurjón lækaði Facebook-færslu um að ætt­ingjar Bjarna hafi fengið tæki­færi til að forða fjár­munum sínum fyrir banka­hrunið. Sigurjón varar við áhrifum þess að stjórn­mála­menn úti­loki og ein­gangri fjöl­miðla­menn. Bjarni kom ein­ungis í selt við­tal á Hring­braut, sem reynd­ist vera brot á lögum um fjöl­miðla og lýð­ræð­is­legum grund­vall­ar­reglum.

Ritstjóri segir að Bjarni hafi útilokað sig varanlega fyrir að gefa like
Bjarni Bene­dikts­son For­sæt­is­ráð­herra til­kynnti þátt­ar­stjórn­anda og rit­stjóra að hann hefði ákveðið að snið­ganga hann, sam­kvæmt frá­sögn af sam­tali í vitna við­ur­vist. Mynd: Pressphotos

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók þá ákvörðun að snið­ganga fjöl­miðla­mann­inn Sigurjón M. Egilsson vegna þess að sá síð­ar­nefndi hafði „lækað“ færslu með gagn­rýni á við­skipti ætt­ingja hans, sam­kvæmt frá­sögn Sig­ur­jóns. 

Sigurjón hefur nú greint opin­ber­lega frá sam­tali hans og Bjarna, sem átti sér stað í vitna við­ur­vist í hús­næði sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar. Samtalið átti sér stað skömmu fyrir alþing­is­kosn­ingar í októ­ber í fyrra, þegar Bjarni var á leið í förðun fyrir upp­tökur á keyptri umfjöllun um Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Sigurjón M. EgilssonEr einn reynd­asti fjöl­miðla­maður lands­ins, fyrr­ver­andi frétta­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og rit­stjóri Hring­brautar, DV, Mannlífs og Blaðsins, og þátt­ar­stjórn­andi á þjóð­mála­þátt­unum Sprengisandi og Þjóð­braut, svo eitt­hvað sé nefnt.

Sigurjón lýsti sam­tal­inu í pistli á vef­síð­unni Miðjunni.is, sem hann rit­stýrir: „Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til­kynnti í heyr­andi hljóði að hann ætl­aði aldrei að tala við mig framar. En hvers vegna? Jú, hann sagði mig hafa borið út óhróður um sig og fjöl­skyldu sína. Það er rangt, hjá þér, svar­aði ég. Hann gaf sig ekki, hækk­aði róm­inn og gaf sig ekki. Ég bar enn af mér sakir. Hann sá af sér, dró aðeins í land og sagði mig hafa lækað færslu á Facebook sem hann væri ekki sáttur við. Ég spurði hvort ákvörðun hans um að tala aldrei framar við mig breytt­ist við þetta. Nei. Hann lagði áherslu á neiið.“

Misjafnt aðgengi að upplýsingum

Færslan sem Sigurjón lækaði er birt hér fyrir neðan. Færslan var skrifuð af Gunnari Smára Egils­syni, þá rit­stjóra Frétta­tím­ans, sem er bróðir Sig­ur­jóns. Í henni er rætt um umfjöllun Kast­ljóss­ins, sem leiddi í ljós að frænka Bjarna hefði fengið upp­lýs­ingar úr Seðla­bank­anum um að neyð­ar­lög á bank­ana væri yfir­vof­andi. Þannig hafi ætt­t­ingjar Bjarna fengið tæki­færi til að forða fjár­munum frá efna­hags­hrun­inu. Áður hefur verið greint frá því að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna, náði að selja fyrir hálfan millj­arð króna í pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitnis dag­ana fyrir yfir­töku rík­is­ins á bank­anum og senda úr landi. Bjarni sjálfur var á meðal  örfárra stjórn­mála- eða athafna­manna sem fund­uðu í höf­uð­stöðvum Stoða nótt­ina fyrir yfir­töku rík­is­ins á bank­anum. Þá hefur einnig verið fjallað um að Bjarni sjálfur seldi hluta­bréf sín í Glitni í febr­úar 2008, á sama tíma og rætt var um gríð­ar­lega erf­ið­leika íslenska banka­kerf­is­ins í innsta hring stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna.

Færsla Gunnars Smára var eft­ir­far­andi: „Engey er víða. Áður en neyð­ar­lögin voru sett hringdi Sturla Pálsson, hag­fræð­ingur í Seðla­bank­anum, í konu sína, Helgu Jóns­dóttir, eins og fram kom í Kast­ljósi, og upp­lýsti um yfir­vof­andi aðgerðir bank­ans. Helga er dóttir Guðrúnar Sveins­dóttur, systur þeirra Einars og Bene­dikts Sveins­sonar, stór­tækra fjár­festa. Benedikt er faðir Bjarna, sem nú er fjár­mála­ráð­herra. Hann og Helga eru systk­ina­börn. Áður en neyð­ar­lögin voru sett fengu Eng­ey­ingar því við­vörun og svig­rúm til að bjarga sínu. Algjörir snill­ingar.“

Sem fyrr segir var það ákvörðun Sig­ur­jóns að gefa færsl­unni „læk“ sem olli því að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra ætl­aði aldrei að ræða aftur við hann.

Þöggun gagnvart fjölmiðlum

Sigurjón seg­ist ekki hafa áhyggjur af eigin stöðu, heldur fjöl­miðla almennt, vegna til­hneig­ingar sem þess­arar að jarð­ar­setja eða úti­loka ákveðna fjöl­miðla­menn vegna gagn­rýni. 

„Hversu margir blaða­menn, frétta­menn eða aðrir hafa þurft að þola ámóta og ég hef lýst hér? Ég er viss um að þeir eru margir.“

Í sam­tali við Stundina lýsir Sigurjón atburða­rásinni með þeim hætti að hann hafi reynt að fá Bjarna í umræðu­þátt á Hring­braut fyrir kosn­ingar, þegar Bjarni kom inn á Hring­braut í öðrum erinda­gjörðum. „Þetta var þannig að ég var að reyna að ná sam­bandi við Bjarna til að fá hann í við­tal í þátt­inn hjá mér fyrir kosn­ingar. Ég náði engu sam­bandi við hann, og ekki við Svan­hildi Hólm heldur. Á meðan ég er í þessu þá gengur hann inn í fyr­ir­tækið,“ segir Sigurjón. „Þá var hann að fara í þátt sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði keypt, kynn­ing­ar­þátt fyrir kosn­ing­arnar.“

Samkvæmt Sig­ur­jóni hafn­aði Bjarni því að koma í umræðu­þátt Sig­ur­jóns og svar­aði því til að hann skyldi senda ein­hvern annan úr Sjálf­stæð­is­flokknum sér í stað. Svo fór að Sigríður Andersen, sem síðar átti eftir að verða dóms­mála­ráð­herra, mætti í þátt­inn í stað for­manns­ins. Sigríður var í þriðja sæti fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. 

Stundin hefur ekki náð tali af starfs­mönnum Hring­brautar sem áttu að hafa orðið vitni að sam­tal­inu. Stundin sendi Bjarna Bene­dikts­syni skila­boð og bauð honum að tjá sig um sam­talið og við­mið sín í við­skiptum við fjöl­miðla eða fjöl­miðla­menn. 

Þess ber að geta að Bjarni neit­aði, einn flokks­for­manna, að svara spurn­ingum Stund­ar­innar fyrir sér­stakt kosn­inga­blað fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í fyrra.

Seld viðtöl voru lögbrot

Svo fór því að Bjarni Bene­dikts­son kom ein­ungis í við­tal á Hring­braut í umfjöllun sem keypt var af Sjálf­stæð­is­flokknum. Þátt­ar­stjórn­andi var ekki hinn óflokks­bundni Sigurjón M. Egilsson, heldur Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Hafn­ar­firði.

Fjöl­miðla­nefnd komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu í júní að birt­ing seldra umræðu­þátta um stjórn­mála­flokka væri lög­brot. Þannig hafi Hring­braut brotið lög um fjöl­miðla og lýð­ræð­is­legar grund­vall­ar­reglur þegar birt var seld umfjöllun um Sjálf­stæð­is­flokk­inn og tvo aðra stjórn­mála­flokka, Fram­sókn­ar­flokk­inn og Viðreisn. 

„Þætt­irnir eiga það allir sam­eig­in­legt að vera stýrt af fram­bjóð­endum flokk­anna eða flokks­bundnum ein­stak­lingum innan þess stjórn­mála­afls sem um er fjallað hverju sinni og virð­ist vera sem rit­stjórn þátt­anna hafi að öllu leyti verið í höndum stjórn­mála­flokk­anna sjálfra,“ segir í umfjöllun Fjöl­miðla­nefndar.

„Að mati fjöl­miðla­nefndar er fag­leg og vönduð umræða fjöl­miðla fólgin í því að þeir leit­ist við að varpa ljósi á mis­mun­andi hliðar mála. Á það ekki síst við í aðdrag­anda kosn­inga þegar fjallað er um stefnu og áherslu­mál þeirra stjórn­mála­afla sem bjóða fram hverju sinni. Fjöl­miðlar eru vett­vangur umræðu og upp­lýs­inga og hafa skoð­ana­mynd­andi áhrif. Því er mik­il­vægt að umfjöllun þeirra ein­kenn­ist af hlut­lægni og jafn­ræðis sé gætt milli sjón­ar­miða, flokka og fram­bjóð­enda. Fjöl­miðla­nefnd getur ekki fall­ist á þau sjón­ar­mið for­svars­manna Hring­brautar að ekk­ert sam­hengi sé á milli bréfs­ins sem Hring­braut sendi a.m.k sjö stjórn­mála­flokkum sem buðu fram í Alþing­is­kosn­ing­unum þann 29. októ­ber 2016 og kosn­inga­þátta sem fjöl­miðla­veitan miðl­aði í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Þá hafa engar skýr­ingar borist fjöl­miðla­nefnd á því hvers vegna ein­ungis var fjallað um þrjú af þeim tólf stjórn­mála­öflum sem buðu fram í umræddum kosn­ingum. Þó er upp­lýst að fram­boðin keyptu aug­lýs­ingar eða greiddu fyrir kosn­inga­þætt­ina sér­stak­lega,“ sagði í úrskurði nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár