Svara ekki fyrirspurn um Þjóðkirkjuna

Dóms­mála­ráðu­neytið svarar ekki fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins. Henni átti að vera lokið í febr­úar 2016.

Svara ekki fyrirspurn um Þjóðkirkjuna

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins svo­kall­aða. Fyr­ir­spurnin var send þann 6. júlí síð­ast­lið­inn og hefur margoft verið ítrekuð síðan þá.

Við hækkun á rekstr­ar­fram­lagi til Þjóð­kirkj­unnar við end­ur­skoðun fjár­laga í nóv­em­ber 2015, um 370 millj­ónir, gerði ríkið það að skil­yrði að kirkjan skuld­bindi sig til að hefja samn­inga­við­ræður um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins með ein­földun og hag­ræð­ingu að leið­ar­ljósi. Þeirri end­ur­skoðun átti að vera lokið fyrir lok febr­úar árið 2016, en þetta skil­yrði rík­is­ins var meðal ann­ars kallað „lög­leysa“ og „ofbeldi“ af kirkj­unnar mönnum. 

Engar fréttir hafa hins vegar borist af samn­inga­við­ræð­unum frá því fjallað var um skil­yrði rík­is­ins í nóv­em­ber 2015. Stundin sendi því fyr­ir­spurn í sumar þar sem spurt var; a) hvernig og hvenær fóru þessar samn­inga­við­ræður fram? b) hver var nið­ur­staða þess­ara samn­inga­við­ræðna? Hefur hún verið birt? og c) ef engin nið­ur­staða er komin, hvar stendur málið í dag?

Fyr­ir­spurn­inni hefur enn ekki verið svarað.

Fjár­fram­lög til Þjóð­kirkj­unnar hafa hins vegar haldið áfram að hækka, en sam­kvæmt síð­asta fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2017 var gert ráð fyrir um 8,8 pró­sent hækkun á fram­lögum rík­is­ins til Þjóð­kirkj­unnar og nema þau nú rúm­lega tveimur millj­örðum króna. Þar að auki hækk­uðu sókn­ar­gjöld um tæp­lega 2,5 pró­sent og fram­lag rík­is­ins til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs sókna hækk­aði einnig um 2,5 pró­sent. Þess má geta að innan við sjö­tíu pró­sent Íslend­inga eru skráð í Þjóð­kirkj­una og fer hlut­fallið hratt lækk­andi.

Inn­heimta rík­is­ins á sókn­ar­gjöldum hefur lengi verið umdeild, sér­stak­lega vegna þess að þeir sem ekki eru skráðir í trú­fé­lag greiða samt sem áður sókn­ar­gjald sem rennur í rík­is­sjóð. Mann­rétt­inda­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna er meðal þeirra sem hefur gert athuga­semd við að allir Íslend­ingar greiði trú­fé­lags­skatt­inn, óháð því hvort þeir séu skráðir í félag eða ekki.

Kirkju­jarða­sam­komu­lagið var und­ir­ritað árið 1997 en það má rekja aftur til árs­ins 1907, þegar ríkið tók yfir stærstan hluta af jörðum kirkj­unnar. Þjóð­kirkjan álítur að ríkið sé að greiða arð af þessum eignum sem það fékk frá kirkj­unni fyrir rúmum hund­rað árum. Á móti myndi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu. Einnig skyldi greiða árlegt fram­lag í Kristni­sjóð sem svar­aði til 15 fastra árs­launa presta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár