Ríkisendurskoðun skoðar lögmæti fjárframlaga til Viðreisnar

Fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son veitti Viðreisn fjár­styrki langt fram yfir lög­bundið hámark, ef einka­hluta­fé­lög í hans eigu eru talin með.

Ríkisendurskoðun skoðar lögmæti fjárframlaga til Viðreisnar
Benedikt Jóhann­es­son Formaður Við­reisnar hefur heitið því að gera upp­lýs­ingar um tengsl og eign­ar­hald fyr­ir­tækja aðgengi­legri en nú er. Mynd: Pressphotos

Rík­is­end­ur­skoðun yfir­fer nú fjár­fram­lög til stjórn­mála­flokks­ins Við­reisnar, vegna ábend­inga um að flokk­ur­inn hafi brotið lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra. 

Í lögum er kveðið á um að hámarks­fram­lag lög­að­ila til stjórn­mála­sam­taka sé 400 þús­und krónur. Hins vegar megi tvö­falda þá upp­hæð þegar stjórn­mála­flokkur er stofn­aður.

Helgi Magn­ús­son fjár­festir veitti Viðreisn styrk sem nemur hámarks­upp­hæð­inni, 800 þús­und krónum. Hins vegar veittu félög í hans eigu Viðreisn einnig fram­lög. Helgi er skráður 100% eig­andi Varð­bergs ehf. og Hofgarða ehf. sem sam­tals veittu Viðreisn 800 þús­und króna styrk. Til við­bótar er Helgi einnig tengdur öðrum félögum sem gáfu Viðreisn 800 þús­und krónur til við­bótar, en þar er eign­ar­hald hans langt undir 10 pró­sentum.

Spurn­ingin er hins vegar hvort hann sé lög­form­lega „tengdur aðili“, sam­kvæmt skil­grein­ingu lag­anna, og hvort túlka beri lögin svo að fram­lög frá félögum í hans eigu séu talin með fram­lögum hans sem lög­að­ila.

„Við sáum ekk­ert athuga­vert í fyrstu skoðun“

„Staðan er bara þannig að við birtum þetta, við skoðum þetta, og ef við sjáum ekki neitt í fyrstu umferð og ef síðan kemur í ljós að eitt­hvað er að, þá látum við lag­færa það,“ segir Guð­brandur Leósson, sér­fræð­ingur hjá Rík­is­end­ur­skoðun, sem nú skoðar fjár­fram­lögin til Við­reisnar, sem nema 26,7 millj­ónum króna sam­tals.

„Við sáum ekk­ert athuga­vert í fyrstu skoðun,“ segir hann. „Ef í ljós kemur að eitt­hvað er að, þá er það bara bak­fært. Ef eitt­hvað er í ólagi eru menn látnir end­ur­greiða.“

Í lögum um fjár­mál stjórn­mála­flokka er kveðið á um að „telja skal saman fram­lög tengdra aðila.“ Guð­brandur segir að reglur um tengda aðila séu „nokkuð flóknar“.

Í lögum eru tengdir aðilar flokk­aðir með þessum hætti: „Lög­að­ilar þar sem svo háttar til að sami aðili eða sömu aðilar eiga meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í báðum eða öllum lög­að­il­unum, enda nemi eign­ar­hlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæða­fjölda í við­kom­andi lög­að­ilum. Sama á við ef ein­stak­lingar eða lög­að­ilar, sem eiga meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í lög­að­ila og hver um sig á a.m.k. 10% hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í lög­að­il­anum, eiga ásamt við­kom­andi lög­að­ila meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í öðrum lög­að­ila. Til eign­ar­hluta og atkvæð­is­réttar ein­stak­linga í lög­að­ilum sam­kvæmt þessum tölu­lið telst jafn­framt eign­ar­hlutur og atkvæð­is­réttur maka og skyld­menna í beinan legg.“

Þá segir: „Lög­að­ilar, sem inna af hendi fram­lög til stjórn­mála­sam­taka eða fram­bjóð­enda, skulu sér­greina heild­ar­fjár­hæð slíkra fram­laga í árs­reikn­ingum sínum. Telja skal saman fram­lög tengdra aðila.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár