Mynd: Shutterstock

Á ferð með eftirlitinu: Lygar, ótti og reiði í Villta vestrinu

Blaða­maður kynnt­ist ótta erlendra starfs­manna og ósann­indum og reiði vinnu­veit­enda í eft­ir­lits­ferð ASÍ og SA um vinnu­staði á Snæ­fells­nes­inu. Dæmi fund­ust um starfs­fólk á 100 þús­und króna mán­að­ar­launum, fólk án ráðn­inga­samn­inga, van­efndir á launa­tengdum greiðslum og sjálf­boða­liða í stað laun­aðs starfs­fólks. Sér­fræð­ingar segja að vinnu­staða­brot gegn starfs­fólki séu að fær­ast í aukanna.

Á milli þess að taka sall­ar­ó­legur fram úr miklum fjölda af hæg­ferða Yaris bílum, hús­bílum, og rútum, segir Hjalti Tómasson, eft­ir­lits­full­trúi stétt­ar­fé­laga, mér að þegar kemur að þróun á ferða­þjón­ustu sé Vest­ur­landið nokkrum árum á eftir suð­ur­land­inu. „Hér er eig­in­lega Villta vestrið í ferða­manna­brans­anum,“ segir Hjalti.

CNN tra­vel valdi Vest­ur­land sem einn af 17 stöðum til að heim­sækja 2017. Hátt í tvær millj­ónir ferða­manna komu til Íslands, en lang stærsti hluti þeirra ferð­ast aðeins um Suð­ur­landið. Færri ferða­langar heim­sækja Vest­ur­landið, og geta þeir því notið fjöl­breyttu og ósnortnu nátt­úr­unnar sem fyr­ir­finnst þar í meira næði. Þar að auki er gott aðgengi úr Reykja­vík, en hægt að skoða Snæ­fells­nes allt á einum eða tveimur dögum.

Ferða­mála­stofa var með bif­reiða­telj­ara sem taldi bif­reiðar og fjölda manns í þeim á Suður- og Vest­ur­landi 2014-2015, og sýndi hann að 34.781 gestir fóru til Hraun­fossa í Borg­ar­firði, og 24.840 til Djúpa­lóns­sands á Snæ­fells­nesi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár