Hvers vegna stoppuðu Þjóðverjar sóknina við Dunkirk?

Illugi Jök­uls­son fjallar um af hverju Þjóð­verjar létu líð­ast að fjölda­margir her­menn Banda­manna slyppu úr her­kví í Dunkirk í upp­hafi seinni heims­styrj­aldar. Eða létu þeir það kannski ekki líð­ast?

Hvers vegna stoppuðu Þjóðverjar sóknina við Dunkirk?
Breskir her­menn í fjör­unni við Dunkirk. Þarna reyna tveir her­menn að verj­ast loft­árás Stuka-steypiflug­vélar - ef að líkum lætur. Þær voru mikið not­aðar við inn­rás­ina í Frakk­land.

Kvik­myndin Dunkirk eftir Christopher Nolan fer nú sig­ur­för um heim­inn, vafa­lítið vin­sælasta stríðs­mynd úr seinni heims­styrj­öld síðan Saving Private Ryan var og hét fyrir 19 árum.

Myndin fjallar eins og flestir vita áreið­an­lega fyr­ir­fram um þá heil­miklu dáð Breta að bjarga stórum hluta af innikró­uðum her sínum og Frakka frá franska bænum Dunkirk í upp­hafi seinni heims­styrj­aldar.

Þýski her­inn stopp­aði þá leift­ur­sókn sína í nokkra daga og Bretar not­uðu tæki­færið til að hefja brott­flutn­ing.

Bretland, Ermar­sund, Frakk­land og Belgía.Ef myndin prent­ast vel má jafn­vel sjá Dunkirk á mynd­inni.

Af hverju Þjóð­verjar stopp­uðu her sinn, þegar þeir virt­ust þess albúnir að ger­sigra Breta og Frakka, þótti gjarnan nokkur leynd­ar­dómur.

Hvað vakti fyrir Hitler? Af hverju „leyfði“ hann Bretum að flýja frá Dunkirk?

Um það verður fjallað hér. Það skal tekið fram að lestur á þess­ari grein skemmir ekk­ert fyrir þeim sem ætla að sjá mynd­ina. Stað­reyndir um innikróun hers­ins við Dunkirk eru birtar í upp­hafi myndar Nolans.

Eins og allir vita hófst síð­ari heims­styrj­öldin 1. sept­em­ber 1939 þegar Þjóð­verjar réð­ust inn í Pólland. Bretar og Frakkar höfðu lofað að ábyrgj­ast öryggi Póllands svo þeir lýstu nú yfir stríði gegn Þjóð­verjum, en gerðu svo harla fátt nema lýsa yfir hafn­banni gegn Þýska­landi.

„Þykjustu­stríðið“ hefur vet­ur­inn 1939-1940 verið kall­aður, og er þá raunar ein­göngu átt við ástand mála í Vestur-Evrópu.

Þann 10. maí 1940 - sama dag og Bretar her­námu Ísland - hófst óvænt sókn Þjóð­verja á vest­ur­víg­stöðv­unum. Í fyrstu virt­ist sókn þeirra aðal­lega bein­ast gegn Holland og síðan Belgíu, enda höfðu Frakkar útbúið keðju öfl­ugra varn­ar­virkja á landa­mærum sínum og Þýska­lands.

Erich von Manstein.Hann var fær hers­höfð­ingi og sjálf­stæður í skoð­unum, og var að lokum rek­inn af Hitler. En hann var Gyð­inga­hat­ari og gerði aldrei neitt til að stöðva Gyð­ingamorð sér­sveita SS. Þvert á móti. Er hann þjón­aði í Sov­ét­ríkj­unum skrif­aði hann yfir­manni morð­sveit­anna og krafð­ist þess að her­menn sínir fengju arm­bandsúr myrtra Gyðinga, því þeir hefðu verið svo dug­legir að hjálpa morð­sveit­unum.

Maginot-línan var keðjan kölluð og talin óvinn­andi fyrir Þjóð­verja.

Franski hers­höfð­ing­inn Gamelin stýrði sam­ein­uðum her Frakka og Breta sem reyndi að bregð­ast við sókn Þjóð­verja.

Gamelin taldi sér óhætt að hverfa með her sinn frá Frakk­landi, því Þjóð­verjar næðu aldrei að sækja yfir Maginot-lín­una, og hélt hann því sem skjót­ast inn í Belgíu með her­inn til að svara sókn Þjóð­verja inn í Holland og Belgíu.

Þjóð­verjar höfðu hins vegar snúið á Gamelin. Hitler for­ingi Þjóð­verja hafði tekið upp á sína arma áætlun sem hers­höfð­ing­inn Erich von Manstein samdi og stakk upp á. 

Samkvæmt henni skyldi aðal­sókn­ar­þungi Þjóð­verja fara gegnum Ardenna­fjöllin í Lúx­em­búrg. Þröngir fjalla­slóðar þar voru taldir ófærir fyrir véla­her­deildir og skrið­dreka og því voru varnir Frakka litlar þar.

Manstein hafði hins vegar sýnt fram á að víst mætti sækja yfir fjöllin.

Því var það að öfl­ugur þýskur her var skyndi­lega kom­inn inn í Frakk­land gegnum Lúx­em­búrg meðan meg­in­her Frakka ásamt breska hernum var kom­inn langt inn í Belgíu.

Og nú brun­aði þessi þýski her í átt til Ermar­sunds og mal­aði allt undir sér á leið­inni. Hern­að­ar­á­ætl­unin var nú skýr: Að ná til sjávar og loka inni her Banda­manna í Belgíu - og ann­að­hvort knýja hann til upp­gjafar eða hrein­lega ger­sigra hann í orr­ustu.

Vel­gengni Þjóð­verja setti Banda­menn gjör­sam­lega út af lag­inu. Bretar og Frakkar brugð­ust hins vegar við með ólíkum hætti. Bretar skiptu strax um for­sæt­is­ráð­herra og köll­uðu í Downing-stræti númer 10 Winston Churchill sem allir vissu að myndi berj­ast til þrautar á hverju sem gengi.

Frakkar fóru hins vegar á taugum og virð­ast frá upp­hafi hafa verið vissir um að þeir ættu ekki séns. Allt í sam­bandi við við­búnað Frakka var stór­skrýtið. Þegar hinn gagns­lausi Gamelin var loks rek­inn 19. maí og hers­höfð­ing­inn Weygand ráð­inn æðsti yfir­mað­ur­inn franska hers­ins í stað­inn, þá sagði hann það verða sitt fyrsta verk að fá góðan næt­ur­svefn.

Síðan brá Weygand sér í nokk­urra daga kurt­eis­heim­sókn til Parísar í stað þess að reyna að stýra her sínum á víg­völl­unum. 

Þann 20. maí - eftir tíu daga sókn - náðu Þjóð­verjar til sjávar og höfðu þar með náð að króa inni mörg hund­ruð þús­und manna franska og breskan her. Her Banda­manna hafði þá verið á suð­ur­leið frá Belgíu í nokkra daga og var mest­allur kom­inn að svæð­inu kringum hafn­ar­borg­ina Dunkirk í Norður-Frakk­landi. Ekki virt­ist blása byr­lega fyrir honum því Þjóð­verjar sóttu nú að úr öllum áttum á landi.

Þá brá svo við þann 23. maí að Þjóð­verjar stöðv­uðu sókn sína við Dunkirk. Í fjóra daga héldu þýsku skrið­drek­arnir kyrru fyrir og flug­vélar Luftwaffe, þýska flug­hers­ins, gerðu til­tölu­lega fáar árásir á innikró­aðan her­inn.

Þessa fjóra daga not­uðu Bretar og Frakkar vel. Hróflað var upp varn­ar­línum kringum Dunkirk og þegar þýska sóknin hófst á ný gekk hún hægt og erf­ið­lega.

Þjóð­verjar ákváðu þá að láta Luftwaffe að mestu um að neyða hinn innikró­aða her til upp­gjafar með loft­árásum.

En þessa fjóra daga höfðu Bretar líka notað til að skipu­leggja brott­flutn­ing herj­anna frá Dunkirk. Hvernig það gekk geta menn séð í kvik­mynd­inni nýju.

En hvers vegna dok­uðu Þjóð­verjar við þessa fjóra örlaga­ríku daga?

Gerd von Rund­stedt.Hann var einn af helstu her­for­ingjum Hitlers-Þýska­lands en átti í nokkuð storma­sömu sam­bandi við Hitler. Eftir stríðið tókst honum furðu vel að búa til þá ímynd að her­inn hefði lítið sem ekk­ert vitað af glæpum SS-sveit­anna, en það hefur síðan komið í ljós að var tóm vit­leysa.

Lengi vel var talið að Hitler hefði sjálfur fyr­ir­skipað stöðv­un­ina. Ástæðuna vissu menn ekki en oft var giskað á að Hitler - sem bar virð­ingu fyrir Bretum - hafi viljað gefa Bretum ákveðið svig­rúm til að semja um frið.

Hann hafi viljað sýna Bretum að honum væri ekki alls varnað með því að neita sér um að mala her þeirra mél­inu smærra.

Eitthvað svo­leiðis.

En þegar menn komust að lokum í skýrslur þýska her­ráðs­ins eftir stríðið kom í ljós að þetta var vit­leysa. Það var hers­höfð­ing­inn Rundt­stedt sem hafði fyr­ir­skipað stöðv­un­ina en Hitler lagði blessun sína yfir hana nokkrum tímum seinna.

Og ástæðan var ein­göngu sú að Rundt­stedt hafði áhyggjur af því að ef hann sækti of gáleys­is­lega fram til Dunkirk myndu Bretar og Frakkar geta brot­ist út ann­ars staðar.

Eftir hraða sókn í tíu daga var þýski her­inn örmagna, elds­neyt­is­laus og að verða skot­færa­lít­ill. Hann þurfti sann­ar­lega á hvíld­inni að halda, að mati Rund­stedts.

Þegar voru raunar á lofti tákn þess að skrið­dreka­sveit­irnar væru orðnar við­kvæmar fyrir gagnárás.

Og senni­lega þurftu þýsku her­menn­irnir líka bara að jafna sig aðeins eftir allt örvandi dópið sem þeir höfðu verið látnir éta til að halda sókn­inni gang­andi fyrstu dag­ana.  

Hitler sam­þykkti strax og var mjög ánægður með ákvörðun Rund­stedts, því for­ing­inn hafði hvað eftir annað síð­ustu daga reynt að fá hers­höfð­ingja sína til að hægja á sókn­inni, svo her­inn koll­keyrði sig ekki.

En þannig fengu Bretar tóm til að skipu­leggja brott­flutn­ing frá Dunkirk.

Í átta daga störf­uðu Bretar að því að flytja her sinn og Frakka burt frá sjáv­ar­borg­inni smáu. Aðgerðum lauk 4. júní og þá lögðu Þjóð­verjar Dunkirk undir sig. 

Frakkar gáfust svo upp þrem vikum seinna en Bretar héldu bar­átt­unni áfram.

 

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár