„Framandlegur tími Óla Gíslasonar útí lífsins táradal.“ Dagbók frá Kaupmannahöfn VI.

Illugi Jök­uls­son fór að skoða hand­rit í Kaup­manna­höfn.

„Framandlegur tími Óla Gíslasonar útí lífsins táradal.“ Dagbók frá Kaupmannahöfn VI.
Upphaf sjálfsævi­sög­unnar. Það var merki­leg stund að vera með þetta í hönd­unum.

Mér leið­ist yfir­leitt rifr­ild­is­gjarnt fólk, jafnt í bókum sem í líf­inu sjálfu. En eitt­hvað var það sem fyllti mig áhuga á séra Ólafi Gísla­syni presti í Saur­bæj­ar­þingum og víðar á 18du öld þegar ég rakst á hann fyrir ald­ar­fjórð­ungi í presta­sögum Oscars Clausens.

Þar úði allt og grúði af róstu­sömum prestum og voru afskap­lega mis­jafn­lega áhuga­verðir, en ég féll alveg fyrir Ólafi. Ég veit ekki alveg hvers vegna; kannski tekst mér ein­hvern tíma að koma því til skila.

En á ein­hvern hátt snýst það um mann sem neitar að láta í minni pok­ann þótt lífið sé þrúg­andi og dauð­inn vís.

En hann fór sem­sagt alla leið til Kaup­manna­hafnar til að halda áfram einu rifr­ildi sínu, og þar skrif­aði hann upp­haf á sjálfsævi­sögu sinni, 64 þétt­skrifuð blöð á dönsku.

Aðeins lít­ill hluti þessa texta hefur verið þýddur á íslensku, og nú er ég kom­inn hingað til Kaup­manna­hafnar að skoða plaggið allt og reyna að stauta mig fram úr því. 

Mappan með hand­rit­inu.Hún virkar svo þunn að ég hélt fyrst hún væri tóm. Það var ekki alveg nógu góð til­finn­ing.

Gá hvað það segir mér um séra Ólaf og kannski ekki síður þá tíma sem hann lifði.

Ólafur fór á end­anum í hundana, eins og sagt, hann tap­aði öllum sínum rifr­ildum og á átt­ræð­is­aldri var hann orð­inn blá­fá­tækur föru­maður.

Þar sem ég stóð í dag á Kon­ung­lega bóka­safn­inu í Kaup­manna­höfn og fór nokkuð óstyrkum höndum um þau blöð sem Ólafur karl­inn hafði skrifað eigin hendi fyrir 230 árum eða þar um bil, þá hug­leiddi ég að lík­lega hefði það nú glatt hann á bana­sæng­inni - hvar sem sú bana­sæng var, kannski úti milli bæja, far­lama öld­ungur, sund­ur­lam­inn af líf­inu - já, lík­lega hefði það glatt hann hefði vitað að þessum meira en 200 árum seinna færi maður frá Íslandi til Kaup­manna­hafnar til þess eins að lesa og þýða ævi­sögu­brotið sem hann skrif­aði ein­hvern tíma í einu rifr­ild­inu:

„Frá vöggu til grafar,“ byrj­aði hann, „ég rétt eins og þú; fram­and­legur tími Óla Gísla­sonar útí lífs­ins tára­dal. Óli (á íslensku Ólafur) fædd­ist til þessa heims ljóss þann 17. febr­úar árið 1727 klukkan sex síð­degis á bæ sem heitir Steinnes úti í Húna­vatns­sýslu norður á Íslandi ...“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár