Nú er liðinn mánuður síðan ég kom heim frá 6 mánaða vinnu í Írak fyrir hjálparsamtökin Læknar án landamæra. Ég var óskaplega fegin að koma heim til Íslands þar sem allt er svo öruggt, ekkert stríð, engar herflugvélar sem fljúga yfir daglega og ekkert ISIS í nokkurra kílómetra fjarlægð. Úr fjarska varð landið mitt sannkallað draumaland. Hér er allt svo hreint og fagurt, sumrin þægilega svöl og ekkert mál að skjótast á milli hlýrra húsa í upphituðum bílnum yfir dimma kalda vetrarmánuði. Kveikja bara á kerti og hafa kósí, horfa á Netflix á flatskjánum eða lesa Laxness og fara áhyggjulaus að sofa á kvöldin. Fólkið allt svo yndislega fordómalaust, Hinsegin dagar orðin þjóðhátíð og flóttafólki boðið á Bessastaði. En fjarlægðin gerir fjöllin vissulega blá og auðvitað er ekkert allt frábært á Íslandi þó að mér finnist enn margt vera betra og jafnvel best hér á landi. Það er samt ekki hægt að neita því að hér geta líka hræðilegir atburðir gerst og þeir gerast vissulega. Í starfi mínu sem sálfræðingur heyri ég nánast daglega lýsingar af alls konar ofbeldi sem alls konar fólk hefur orðið fyrir á lífsleiðinni. En við þurfum svo sem ekki að vera sálfræðingar til að heyra um ofbeldi og hörmungar heimsins. Daglega dynja á okkur fréttir, innlendar og erlendar, um ofbeldi, stríð og mannvonsku. Þetta getur verið yfirþyrmandi og við vitum öll að fyrstu vikur ársins hafa verið mjög erfiðar hvað þetta varðar. Morð við bæjardyrnar. Ofbeldið komið inn á rúmstokk. Svo sárt og erfitt að fylgjast með þessu og margir hafa lýst andvökunóttum vegna þessa. Ég líka, ég sem var loksins komin heim til Íslands til að geta farið róleg að sofa á kvöldin.
„Heiðvirðara og hjartahlýrra fólki en Írökum hef ég sjaldan kynnst og Sýrlendingar bera meiri virðingu fyrir öðru fólki en aðrir sem ég hef kynnst.“
Núna opnar maður svo ekki tölvu eða útvarp án þess að heyra um Mexíkómúrinn og múslimabann Donalds Trump. Þennan fáránlega múr og þetta hræðilega bann hans. Mér finnst þetta svo innilega sárt því að með þessu virðist hann segja mexíkóskum, íröskum og sýrlenskum vinum mínum að þeir séu minna virði en aðrir. Þeir séu ekki frjálsir ferða sinna, ekki velkomnir. Mér finnst þetta alger klikkun. Sérstaklega eftir að hafa kynnst svo mikið af yndislegu fólki frá Mexíkó, Írak og Sýrlandi undanfarna mánuði. Í starfinu mínu í Írak vann ég með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, fjármálafólki, tæknifólki, tölvunördum og bara alls konar fólki frá ótal löndum sem valið hefur að lána Læknum án lndamæra starfskrafta sína í lengri eða skemmri tíma. Ég taldi þau lönd sem vinnufélagar mínir komu frá á einhverjum tímapunkti en hætti að telja þegar löndin voru komin upp í 26. Allt þetta fólk hefur ákveðið að verja hluta af lífi sínu í að hjálpa öðrum. Ferðast heimshornanna á milli til að sinna þeim sem minna mega sín, fólki í stríðshrjáðum löndum og þar sem náttúruhamfarir hafa herjað.

Svo vann ég auðvitað með mörgum Írökum og nokkrum Sýrlendingum. Heiðvirðara og hjartahlýrra fólki en Írökum hef ég sjaldan kynnst og Sýrlendingar bera meiri virðingu fyrir öðru fólki en aðrir sem ég hef kynnst. En það sem mér fannst kannski merkilegast af öllu var að allir sem ég var að vinna með voru svo ofsalega indælir. Ekki það að ég hafi búist við því að fólk í Írak væri ekki indælt. Fólk var bara svo mikið indælt. Í þessum aðstæðum áttar maður sig líka á því hvað allir eru eins, þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og reynslu í lífinu. Fólk í Írak er bara svo mikið eins og ég og þú, bara fólk að lifa sínu lífi þrátt fyrir allt. Líka sýrlenski hjúkrunarfræðingurinn sem flúði úr hernum og var þess vegna vegabréfslaus í Írak, gat ekki farið aftur til Sýrlands og ekki farið frá Írak. Hann hafði hugleitt að borga smyglurum til að koma sér til Evrópu en lagði ekki í það, enda ósyndur og óviss um hvað biði sín í Evrópu; læknarnir tveir sem tekist hafði að flýja Mosul en áttu mæður og systkini í borginni sem enn er að hluta til undir stjórn ISIS; tölvugaurinn frá Bagdad sem hafði flúið hryðjuverkin í borginni með fjölskyldu sinni og varð mér eins og bróðir á þessum stutta tíma; hjúkrunarfræðingurinn sem varð svo góð vinkona mín þrátt fyrir að hún talaði enga ensku og ég enga kúrdísku eða arabísku. Hún er Yazidi. ISIS frömdu fjöldamorð á Yazidi-fólki og tóku ungar konur sem kynlífsþræla. Ég grét svo mikið þegar ég kvaddi hana, langaði mest af öllu að bjóða henni með mér til Íslands. Hún hafði hins vegar meiri áhuga á að sameinast fjölskyldu sinni í Þýskalandi. Ég vona innilega að henni takist það.
Þegar fólk spyr mig hvað sitji helst eftir frá þessum sex mánuðum í Írak, hvað ég hafi lært, hvað sé minnisstæðast, þá er manngæskan alltaf það fyrsta sem kemur upp í hugann. Hversu mikið af góðu fólki er í þessum heimi og hversu lík við erum öll í raun og veru. Þrátt fyrir allt ofbeldið og stríðin þá virðist það samt vera svo að langflest viljum við vel og erum alls ekkert vond. Allir eru vissulega að heyja sína eigin baráttu, mörgum finnst á þeim brotið, margir eru reiðir og ósammála og vilja breyta hlutunum en fæstir vilja vera vondir. Munum að langflestir Íslendingar, Írakar og Bandaríkjamenn vilja vel en stundum, sums staðar verður óttinn og ofbeldið manngæskunni yfirsterkari. Höldum áfram að berjast gegn óttanum og ofbeldinu á Íslandi og verum stolt af því að berjast fyrir því góða.




















































Athugasemdir