Sýn tilkynnti FME um meðferð innherjaupplýsinga í forstjóratíð Heiðars

Sýn til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í febr­úar um hvernig farið var með innri upp­lýs­ingar hjá félag­inu árið 2022, þegar Heiðar Guð­jóns­son var for­stjóri þess. Um svipað leyti seldi hann sig úr félag­inu fyrir 2,2 millj­arða. Þeir hafa höfðað skaða­bóta­mál.

Sýn tilkynnti FME um meðferð innherjaupplýsinga í forstjóratíð Heiðars
For­stjór­inn Heiðar var bæði for­stjóri og stærsti fjár­festir­inn í Sýn þegar hin athygl­is­verða upp­lýs­inga­miðlun – eða skortur á miðlun – átti sér stað. Mynd: Sýn

Sýn til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrr á þessu ári um það hvernig farið var með innri upp­lýs­ingar hjá félag­inu árið 2022, þegar Heiðar Guð­jóns­son var stærsti eig­andi og for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Málið teng­ist meðal ann­ars rekstr­ar­spá sem virð­ist ekki hafa farið rétta boð­leið innan félags­ins um svipað leyti og Heiðar seldi fjár­festum stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu. Þessir sömu fjár­festar hafa stefnt Heiðari fyrir dóm og krefj­ast skaða­bóta, að því er Morg­un­blaðið greinir frá.

Málið snýr meðal ann­ars að upp­færðri rekstr­ar­spá Sýnar vegna tekna af svo­kall­aðri IoT-starf­semi, eða þjón­ustu sem tengir tæki og búnað við fjar­skipta­net. Samkvæmt Sýn virð­ist þeirri spá ekki hafa verið miðlað innan félags­ins eins og verk­lags­reglur gerðu ráð fyrir.

Félagið greinir frá þessu í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar og segir til­efnið vera umfjöllun um máls­höfðun Gavia Invest á hendur Heiðari og félagi hans Úrsus.

Málið kom upp þegar núver­andi stjórn og stjórn­endur Sýnar fóru yfir eldri rekstr­ar­gögn vegna áætl­ana­gerðar fyrir árið 2026. Þá komu fram upp­lýs­ingar sem urðu til þess að farið var að skoða nánar hvernig farið hefði verið með upp­lýs­ingar um rekstr­ar­spá félags­ins árið 2022.

Stjórn Sýnar fékk í kjöl­farið óháð lög­fræði­á­lit og ákvað eftir þá yfir­ferð að upp­lýsa Fjár­mála­eft­ir­litið um málið og afhenda því gögn.

Atvikin sem núver­andi stjórn taldi ástæðu til að vekja athygli Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á áttu sér stað um svipað leyti og Heiðar átti í millj­arða­við­skiptum með hluta­bréf í Sýn.

Eign­ar­halds­fé­lag Heiðars seldi í júlí 2022 nýstofn­uðu félagi undir for­ystu Reynis Grét­ars­sonar 12,72 pró­senta hlut sinn í Sýn. Með við­skipt­unum seldi Heiðar allan hlut sinn í félag­inu og lét jafn­framt af störfum sem for­stjóri.

Sýn tekur fram í til­kynn­ingu sinni að félagið taki ekki afstöðu til þess hvort lög eða reglur hafi verið brotin. Fjár­mála­eft­ir­litið hafi heldur ekki komið neinni nið­ur­stöðu eða afstöðu á fram­færi við félagið vegna máls­ins.

Í yfir­lýs­ingu stjórnar Sýnar segir jafn­framt að þessi atvik frá árinu 2022 hafi engin áhrif á dag­legan rekstur félags­ins í dag og að rekstur og afkoma séu í sam­ræmi við birtar áætl­anir.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár