„Enn ein lygin“ segir mexíkóskur þingmaður sem Bandaríkin ákæra fyrir fíkniefnamisferli

Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið ákærði mexíkóska þing­mann­inn Enrique Inzunza og níu aðra emb­ætt­is­menn úr stjórn­ar­flokknum Morena og krafð­ist fram­sals þeirra. Er þeim gefið að sök að hafa unnið með glæpa­gengi að dreif­ingu fíkni­efna innan Banda­ríkj­anna.

„Enn ein lygin“ segir mexíkóskur þingmaður sem Bandaríkin ákæra fyrir fíkniefnamisferli

Mexíkóskur öld­unga­deild­ar­þing­maður, sem banda­rísk yfir­völd vilja fá fram­seldan vegna ákæru um fíkni­efna­smygl, sagði í gær að hann myndi „aldrei“ ger­ast verndað vitni fyrir Banda­ríkja­menn í þessu for­dæma­lausa máli.

Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið ákærði Enrique Inzunza og níu aðra emb­ætt­is­menn úr stjórn­ar­flokknum Morena í apríl og krafð­ist fram­sals þeirra vegna meintrar sam­vinnu við hið alræmda Sinaloa-fíkni­efnakar­tel við dreif­ingu fíkni­efna innan Banda­ríkj­anna.

Þetta var í fyrsta sinn sem Banda­ríkin ákæra sitj­andi mexíkóskan stjórn­mála­mann.

Inzunza hafn­aði því að bera vitni fyrir banda­rískum yfir­völdum gegn því að njóta verndar: „Þetta er bara enn ein lygin af mörgum sem hafa verið sagðar,“ sagði hann á blaða­manna­fundi í gær. „Ég mun aldrei nýta mér slíkt.“ 

Hann sagð­ist treysta á rétt­lætið: „Ég er Mexíkói sem treystir stofn­unum lands síns.“

Ríkisstjóri hættir

Ruben Rocha Moya, rík­is­stjóri Sinaloa, sem er einn þeirra tíu sem hafa verið ákærðir, til­kynnti í síð­asta mán­uði að hann hygð­ist …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Án þess að taka hér afstöðu til valdaklíku í Venesúela og hvort þeir stunda nú glæpir eða ekki finnst mér ískyggilegt að á sama tíma og BNA undir sínum forseta taka að sér tilkall á dómsvaldi á heimsvísu leggja þau dómara og saksóknara alþjóðadómstóla í einelti með því að frýsta eigum þeirra í BNA, leggja á þá viðskiptaþvinganir og viðskiptabönn, m.a. með því að koma í veg fyrir viðskipti með Visakorti og láta loka tölvupóstareikningum. Um þann þátt finnst mér allt of lítið fjallað í fjölmiðlum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár