Högna sleppt úr kólumbísku fangelsi

Högni Kjartan Þor­kels­son, sem sætir ákæru í Kólumbíu fyrir kyn­ferð­is­brot gegn 16 ára stúlku, var leystur úr haldi í júlí eftir að fram­burður þol­anda breytt­ist. Lögmaður hans von­ast til að mál­inu verði vísað frá á næstu dögum.

Högna sleppt úr kólumbísku fangelsi
Högni Kjartan Þor­kels­son Íslend­ing­ur­inn ákærði í Kólumbíu var við­staddur með­ferð máls­ins í júlí í gegnum fjar­funda­búnað.

Kól­umbískur lög­maður Högna Kjartans Þor­kels­sonar von­ast til að máli gegn honum verði vísað frá á næstu dögum eftir að þol­andi breytti fram­burði sínum.

Högni var hand­tek­inn í Medellín í Kólumbíu og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald 22. des­em­ber í fyrra vegna meints kyn­ferð­is­brots gegn 16 ára stúlku.

Yfirvöld í Kólumbíu sögðu Högna hafa haft sam­band við stúlk­una, sem til­heyrir LGBTQ-sam­fé­lag­inu að sögn lög­reglu, og boðið henni pen­ing í skiptum fyrir kyn­mök. Þá hafi hann farið með hana í íbúð í Simón Bolívar-hverf­inu í Medellín þar sem atvikið hafi átt sér stað 6. des­em­ber. Hann hafi verið hand­tek­inn skömmu síðar en neitað sök í mál­inu.

Við hand­tök­unaHögni sætir enn ákæru fyrir kyn­ferð­is­brot gegn 16 ára stúlku.

16. júlí síð­ast­lið­inn sam­þykkti dóm­ari hins vegar að fella gæslu­varð­hald yfir Högna úr gildi þar sem ný gögn höfðu komið …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár