Erlendum ríkisborgurum fjölgar áfram á Íslandi

Þrátt fyrir vaxandi atvinnu­leysi fjölgar erlendum ríkis­borgurum áfram á Íslandi, en hægt hefur á.

Frá menningarnótt
Frá menn­ing­arnótt Íslend­ingum hefur fjölgað mikið á síð­ustu árum. Mynd: Hörður

Íbúum á Íslandi fjölgaði um 1.450 Frá apríl til júní fluttu 930 einstaklingar til Íslands umfram brott­flutta. Þar af voru 700 erlendir ríkis­borgarar, en 230 íslenskir.

Það jafn­gildir um það bil íbúa­fjölda Blönduóss í aðflutningi fólks á einum ársfjórðungi.

Erlendir ríkis­borgarar eru núna 17,9% af mann­fjöldanum, eða liðlega 71 þúsund manns. Fyrir tíu árum voru erlendir ríkis­borgarar aðeins 26 þúsund. 

Atvinnu­leysi hefur farið vaxandi síðustu ár og er nú 5% eftir að hafa verið 2,9% árið áður, árstíðar­leiðrétt. Hægt hefur á aðflutningi fólks síðustu ár. Á sama ársfjórðungi í fyrra voru 1.340 aðfluttir umfram brott­flutta, 1.780 árið áður, og 2.210 þar áður og 3.310 árið 2022.

Íslendingar stefna hraðbyri í að ná 400 þúsund, en eru núna 396.500 talsins. Eins og síðustu ár er meiri fjölgun vegna aðflutnings en vegna fæðinga. Á ársfjórðungnum fæddust 540 manns umfram fjölda …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár