Ráðgjafi Hafnarfjarðabæjar velti 40 milljónum

Ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­ið Vissa ráð­gjöf átti gott rekstr­ar­ár á síð­asta ári sam­kvæmt árs­reikn­ingi fé­lags­ins. Eig­andi þess er fyrr­ver­andi þing­mað­ur, en nokk­ur styr var um störf hans fyr­ir Hafn­ar­fjarð­ar­bæ.

Ráðgjafi Hafnarfjarðabæjar velti 40 milljónum
Hafnarfjörður Mynd: Golli

Ráðgjafafyrirtæki Ágústs Bjarna Garðarssonar, fyrrverandi þingmanns Framsóknarflokksins, átti sterkt rekstrarár á síðasta ári, þegar það velti 40 milljónum króna.

Ágúst Bjarni féll af þingi eftir síðustu þingkosningar en áður var hann sjálfur oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði. Við honum tók Valdimar Víðisson, sem lét af embætti bæjarstjóra á dögunum, þrátt fyrir góðan sigur Framsóknarflokksins í bænum tókst honum ekki að mynda meirihluta því Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir flokkar sökuðu hann um trúnaðarbrest í meirihlutaviðræðum.

Sjö milljónir fyrir ráðgjöf

Heimildin fjallaði um það fyrir sveitarstjórnarkosningar að félag Ágústs Bjarna, Vissa Ráðgjöf, hefði fengið tæpar 7 milljónir króna fyrir ráðgjafastörf hjá Hafnarfjarðarbæ á síðasta rekstrarári.

Þá kom fram í svari Hafnarfjarðarbæjar við fyrirspurn Heimildarinnar að þáverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og samflokksmaður Ágústs, Valdimar Víðisson, hefði falið Ágústi Bjarna að vinna verkefni fyrir bæinn. Meðal þeirra var uppbygging á Hraun vestur svæði, Reykjavíkurvegi 60-62, …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Torfi H Ágústsson skrifaði
    Torfi H Ágústsson, Sléttuvegur 23 , íb.602 . Reykjavík 103 , ÍTREKAÐ
    -1
  • Torfi H Ágústsson skrifaði
    Blaðið berst mér ekki ! Ég bý á Slettuvegur 23 . íb.602 . ÝTREKAÐ
    Torfi H Ágústsson. (Var fyrir nokkrum árum á Kristnibraut 29)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár