Halla Bergþóra Björnsdóttir tók í vor við embætti ríkislögreglustjóra. Hún á að baki langan feril innan löggæslunnar og hefur orðið vitni að ýmsu. „Það er svo margt sem getur gerst hjá fólki. Mannleg hegðun kemur sífellt á óvart. Margt sem ég sé og upplifi sem fólk gerir er eitthvað sem ég gæti ekki logið til um.“
Sjálf er hún alin upp í sveit og lærði snemma að beita innsæinu til að lesa í náttúruna og hegðun og atferli dýra, sem gaf góðan grunn til að læra að lesa í fólk. „Það hjálpar mér þegar ég þarf að eiga við fólk til að meta hvernig er gott að bregðast við og nálgast fólk. Þessi nærgætni nýtist mér í starfi þar sem ég er oft að tala við fólk sem hefur lent í ýmsu og þú þarft að reyna að skilja og hlusta og meðtaka það sem það hefur að segja. Svipað …

























Athugasemdir