Hækka verð til að verja hagnaðinn

Móð­ur­fé­lag Öl­gerð­ar­inn­ar hagn­að­ist um 398 millj­ón­ir króna á fyrsta árs­fjórð­ungi. Vöxt­ur­inn skýrist þó fyrst og fremst af nýju fé­lög­un­um Gæða­bakstri og Kjarna­vör­um, því rekst­ur eldri hluta sam­stæð­unn­ar dróst sam­an milli ára. Á sama tíma boð­ar Öl­gerð­in verð­hækk­an­ir vegna hækk­andi olíu- og ál­verðs.

Hækka verð til að verja hagnaðinn
Upp Bæði hagnaður og verð Ölgerðarinnar hefur þokast uppá við. Mynd: Kristinn Magnússon

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, hagnaðist um 398 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi fjárhagsársins. Hagnaðurinn jókst lítillega að nafnvirði frá sama tíma í fyrra, þegar hann var 379 milljónir króna. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri félagsins sem birt var fyrir helgi. 

Sala samstæðunnar jókst um tæp 15 prósent og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta jókst um 26 prósent. Samanburðurinn er þó flókinn, því tvö félög, Gæðabakstur og Kjarnavörur, bættust við samstæðu Beru í desember. Þau voru því ekki inni í tölunum fyrir sama tímabil í fyrra en eru inni í tölunum núna.

Lykillinn í vextinum

Þessi viðbót virðist skipta talsverðu fyrir niðurstöðuna. Rekstrarhagnaður Beru fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta var 1.225 milljónir króna á fjórðungnum. Þar af komu 285 milljónir frá Gæðabakstri og Kjarnavörum.

Ef félögin tvö eru tekin út úr jöfnunni stendur eftir um 940 milljóna króna rekstrarhagnaður. Á sama tíma í fyrra var sambærileg tala 970 milljónir króna. Batnandi …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár