Stóra-Ísrael og þjóðarmorðið

Ísra­el er land án landa­mæra í stöð­ugri út­þenslu með að­ferð­um sem al­þjóða­stofn­an­ir kenna við þjóð­armorð.

Stóra-Ísrael og þjóðarmorðið
Kort án Palestínu Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, kynnti sýn sína fyrir Miðausturlönd í allsherjarráði Sameinuðu þjóðanna í New York 27. september 2024. Athygli vakti að á kortinu yfir Miðausturlönd náði Ísrael yfir land Palestínumanna og hertekin svæði innan Sýrlands. Mynd: AFP

Ungbarn er skotið í höndum móður, byggðum eytt í Líbanon og grafreitir Palestínumanna á Gasasvæðinu jafnaðir við jörðu á meðan talað er um að liðka fyrir „sjálfviljugum brottflutningi“ þeirra og landnámi Ísraelsmanna. 

Svo vill til að atburðirnir falla að hugmyndafræði, stefnu og draumsýn sumra Ísraelsmanna, sem nú eru við völd, um hið svokallaða Stóra-Ísrael, eða Greater Israel. Hugmynd var hluti af stofnun Ísraelsríkis, sem lýsti yfir sjálfstæði án skilgreindra landamæra. 

Súper-Sparta í Miðausturlöndum

Núverandi ríkisstjórn Ísraels, undir forsæti Benjamíns Netanjahús, samanstendur af fimm flokkum og er talin sú lengst til hægri sem mynduð hefur verið í landinu. 

Forsætisráðherrann sagðist í viðtali í ágúst í fyrra vera „mjög svo“ tengdur við hugmyndina um „Stóra-Ísrael“. 

Nágrannaríki Ísraels kröfðu Netanjahú um skýringu á því hvað hann meinti með orðunum. Enda er óljóst til hvers er vísað með Stóra-Ísrael. Í sköpunarsögu Biblíunnar er Guð sagður lofa Abraham og afkomendum hans landsvæði frá Níl …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár