Það var rétt rúmlega níu um morguninn síðasta mánudag sem Ísak Berglindarson sá fáklæddan mann hlaupa undan fjórum lögreglumönnum í kirkjugarðinum í Reykjanesbæ. Ísak var eina sjónarvitnið að atvikinu en hann var þá á heimleið eftir að hafa farið með bíl sinn í viðgerð.
Ísak sá þá 42 ára gamlan íslenskan fjölskyldumann, sem var skotinn af lögreglu með rafbyssu. Í kjölfarið kviknaði í honum. Hann liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi í Noregi samkvæmt lögmanni hans, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, sem segist ekki geta staðfest að kveikt hafi verið á búkmyndavélum lögreglunnar þegar atvikið átti sér stað, þar sem þær upplýsingar liggi ekki fyrir að svo stöddu. Hann vill að Héraðssaksóknari endurheimti myndbandið en embættið hefur tekið málið til rannsóknar.
Maðurinn sem um ræðir fór í langa aðgerð í gær og hefur verið haldið sofandi frá því atvikið átti sér stað, en hann er með brunasár um 50 prósent af líkamanum. …

















































Athugasemdir