Ríkislögreglustjóra ekki með neinar upplýsingar um erlend afskipti

Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur eng­ar upp­lýs­ing­ar sem benda til þess að er­lend ríki eða að­ir hafi reynt að hafa áhrif á þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una sem fram fór síð­ustu helgi.

Ríkislögreglustjóra ekki með neinar upplýsingar um erlend afskipti
Halla Bergþóra Björnsdóttir Ríkislögreglustjóri hefur ekki upplýsingar um að reynt hafi verið að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna síðustu helgi. Mynd: Golli

Embætti ríkislögreglustjóra hefur ekki upplýsingar um að erlend ríki hafi reynt að hafa ólögmæt áhrif á nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort Ísland ætti að taka aftur upp aðildarviðræður við ESB. Þetta kemur fram í svari embættisins við skriflegum spurningum Heimildarinnar.

Ríkisstjórnin lýsti yfir áhyggjum af slíkum áhrifum þegar tilkynnt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fór í lok ágúst. Í kjölfarið undirbjó greiningardeild ríkislögreglustjóra mat á því hvort erlend ríki eða aðrir hagsmunaaðilar kynnu að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna. Í viðtali við Finnboga Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjón hjá greiningardeild, við Vísi í mars síðastliðnum, kom fram að ógnarmat hefði verið unnið með hliðsjón af reynslu annarra ríkja.

Hann sagði þá að upplýsingar frá erlendum samstarfsaðilum sýndu að reynt hefði verið að hafa áhrif á kosningar í öðrum ríkjum. Því yrði að taka alvarlega að sambærilegar tilraunir gætu beinst að Íslandi, meðal annars með áróðri, þrýstingi á kjósendur, ólöglegri fjármögnun eða hótunum gegn þeim …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þvert gegn þessu mati ríkislögreglustjóra fullyrðir stækkunarstjóri ESB að bæði Rússar og Bandaríkjamenn hafi reynt að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna með "uplýsingaóreiðu og falsfréttum". Eina raunverulega falsfréttin er þessi hugarburður stækkunarstjórans. Hún segir líka að berjast þurfi gegn "popúlistum" á sama tíma og hún sjálf stundar lýðskrum. Jafnvel hörðustu andstæðingar ESB gætu varla samið svona miklar þversagnir um Mörtu Kos.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár