Skandall skekur Umbótaflokkinn

Meðlimir í flokki Nigel Farage reyndu að tryggja erlend fjár­fram­lög. Áður hafa banda­rísk fram­lög verið kærð.

Skandall skekur Umbótaflokkinn
Nigel Farage Leiðtogi Umbóta­flokks­ins er sjálfur umdeildur vegna hárra fjár­fram­laga sem hann hefur þegið. Mynd: AFP

Breski hægri­flokk­ur­inn Umbóta­flokk­ur­inn, Reform UK, undir for­ystu Nigel Farage, kemur saman á árs­fundi sínum í dag í skugga nýs hneyksl­is­máls vegna ásak­ana um að flokk­ur­inn hafi brotið reglur um fjár­fram­lög.

Brexit-for­kólf­ur­inn Farage hafði von­ast til að nýta fund­inn til að kom­ast yfir fjöl­mörg deilu­mál um fjár­gjafir sem hafa dregið úr fylgi flokks­ins, sem er andsnú­inn inn­flytj­endum, í skoð­ana­könn­unum.

En aðeins nokkrum klukku­stundum fyrir aðal­ræðu Farage sögðu tveir hátt­settir emb­ætt­is­menn Umbóta­flokks­ins af sér í kjöl­far rann­sóknar með fal­inni mynda­vél sem sýnd var á Channel 4 News, þar sem þeir voru sak­aðir um að hafa lagt á ráðin um að tryggja erlent fjár­fram­lag – sem er bannað sam­kvæmt breskum kosn­inga­lögum.

Kærðu bandarísk framlög

Umbóta­flokk­ur­inn sagði í yfir­lýs­ingu að James Orr og Dan Jukes hefðu stigið til hliðar úr störfum sínum á meðan nið­ur­stöður innri rann­sóknar liggja fyrir.

Verka­manna­flokk­ur­inn, sem er í stjórn, var meðal þeirra stjórn­mála­flokka …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár