Vilja Geysi, Brennisteinsfjöll og Arnardalsvirkjun í verndarflokk

Jökulsá á Fjöllum, Geys­is­svæði og Hólmsá eru meðal til­lagna verk­efna­stjórnar ramma­á­ætl­unar að vernd­ar­svæðum. Alls færu fjórtán virkj­ana­hug­myndir í vernd­ar­flokk ef til­lagan er sam­þykkt.

Vilja Geysi, Brennisteinsfjöll og Arnardalsvirkjun í verndarflokk
Geysir Er ein virkj­ana­hug­mynd sem verk­efna­stjórn ramma­á­ætl­unar vill setja í vernd­ar­flokk. Mynd: Shutterstock

Verk­efna­stjórn 6. áfanga ramma­á­ætl­unar hefur lagt til átta vernd­ar­svæði sem setja 14 virkj­ana­kosti í vernd­un­ar­flokk. Um er að ræða fjögur vatna­svið og fjögur háhita­svæði. Vatna­sviðin eru Jökulsá á Fjöllum, Hólmsá, Tungnaá og Jök­ul­fall og Hvítá. Háhita­svæðin eru Brenni­steins­fjalla­svæði, Geys­is­svæði, Kerl­inga­fjalla­svæði og Gjá­stykk­is­svæði.

Tillögur verk­efna­stjórnar birt­ust í sam­ráðs­gátt í vik­unni og stendur umsagn­ar­tíma­bil til 23. nóv­em­ber. Meðal virkj­ana­hug­mynda sem færu í vernd­ar­flokk eru Geysir, einn vin­sæl­asti ferða­manna­staður lands­ins, Hólmsár­virkjun, Brenni­steins­fjöll og Arn­ar­dals­virkjun sem hefði orðið til þess að Detti­fossi, öðrum vin­sælum ferða­manna­stað, yrði breytt.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

23 mín.
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár