Ari Edwald, nýkjörinn borgarfulltrúi, Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, og fleiri félagar þeirra í flokknum kvörtuðu undan því í kosningabaráttunni og strax í kjölfar kosninga að fjölmiðlar vildu „ræða frekar það sem frambjóðendur Miðflokksins hafa ekki sagt en það sem þeir hafa sagt“. Stefna flokksins og orðræða frambjóðanda varð þó til þess að Viðreisn útilokaði meirihlutasamstarf með flokknum og er meirihluti frá miðju til hægri því úr sögunni. Miðflokkurinn uppskar mikla fylgisaukningu í borginni í nýafstöðnum kosningum og fékk þrjá menn kjörna.
Orðræða kjörinna fulltrúa og frambjóðenda gæti þó sett strik í reikninginn við myndun meirihluta en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, sem er langstærsti flokkurinn í borginni með 9 borgarfulltrúa, lýsti því afdráttarlaust í Kastljósi daginn eftir kosningar að hún myndi aldrei leiða meirihluta með flokkum þar sem fordómar væru liðnir.
Hart var sótt að Ara vegna ummæla Snorra og fleiri flokksfélaga um að fjarlægja ætti fána hinsegin fólks úr skólum …

























Athugasemdir