Þetta voru loforð Sjálfstæðisflokksins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer inn í meiri­hluta­við­ræður í Reykja­vík með ítar­legan lista yfir 152 lof­orð og aðgerðir. Flokk­ur­inn vill ráð­ast strax í breyt­ingar á sam­göngum, skipu­lagi, leik­skóla­málum og rekstri borg­ar­innar og boðar umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu frá frá­far­andi meiri­hluta.

Þetta voru loforð Sjálfstæðisflokksins
Borg­ar­stjóri Það virð­ist vera póli­tískur ómögu­leiki að Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, verði ekki næsti borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Hún leiðir stóran hóp borg­ar­full­trúa sem hefur fleiri en einn kost til meiri­hluta­mynd­unar. Mynd: Golli

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í lyk­il­stöðu til að ná fram kosn­inga­lof­orðum sínum í meiri­hluta­við­ræðum eftir að hann fékk níu borg­ar­full­trúa kjörna í nýaf­stöðnum borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hildur hefur lýst því að tveir aug­ljósir kostir séu til mynd­unar meiri­hluta; ann­ars vegar tveggja flokka meiri­hluta með Mið­flokknum eða þriggja flokka meiri­hluta með Viðreisn og Framsókn.

Aðgerð­ar­listi flokks­ins, sem flokk­ur­inn birti í aðdrag­anda kosn­inga, sýnir hvers konar breyt­ingar Sjálf­stæð­is­menn vilja setja á odd­inn. Í heild lagði flokk­ur­inn fram 152 lof­orð, sem skipt­ust niður í sjö mála­flokka. Það eru fjöl­skyldu­mál, sam­göngur, hús­næði, rekstur, hreyf­ingu og úti­vist, mál­efni eldri borg­ara og atvinnu­líf og menn­ingu.

Af þeim eru 29 aðgerðir sem koma eiga til fram­kvæmda á fyrstu 100 dög­unum, 59 aðgerðir eiga að koma til fram­kvæmda innan tólf mán­aða, 54 á kjör­tíma­bil­inu og tíu eru settar fram sem fram­tíð­ar­mark­mið.

Bílastæði, leikskólar og niðurskurður fyrstu 100 dagana

Fyrstu hund­rað dag­ana ætlar flokk­ur­inn að ráð­ast í sýni­legar og …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Hvet borgaryfirvöld til að hafa frístundakortin bæði fyrir öryrkja og eldri borgara.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár