Sjálfstæðisflokkur stærstur í síðustu könnun fyrir kosningar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur mæl­ist stærst­ur í Reykja­vík. Mið­flokk­ur fengi tvo full­trúa og gæti því ekki ver­ið þriðja hjól­ið í meiri­hluta með Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­flokki.

Sjálfstæðisflokkur stærstur í síðustu könnun fyrir kosningar
Á toppnum Sjálfstæðisflokkur Hildar Björnsdóttur má teljast nokkuð örugglega stærsti flokkurinn í Reykjavík í dag. Framsóknarflokkur Einars virðist að sama skapi örugglega inni í borgarstjórn, sem hefur verið tvísýnt í könnunum undanfarinna missera. Mynd: Golli

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í nýrri könnun Maskínu sem birtist seint í gærkvöldi. Hann mælist með 31,3 prósenta fylgi.

Það er nákvæmlega sama fylgi og Gallup mældi flokkinn með í sinni könnun, sem birtist líka í gær. Flokkurinn fengi 8 fulltrúa í borgarstjórn, verði þetta niðurstöður kosninganna í dag.

Samfylking mælist næststærst hjá Maskínu, með 19,4 prósenta fylgi, Viðreisn þar á eftir með 12 prósent og Vinstrið með 11 prósent. Í sætum talið fengi Samfylking 5 fulltrúa, en Viðreisn og Vinstrið 3 hvor.

Miðflokkurinn mælist með 9,8 prósent og 2 fulltrúa og Framsókn 6,1 prósent og einn fulltrúa.

Sósíalistaflokkurinn mælist með síðasta fulltrúann í borgarstjórn, með 4,5 prósenta fylgi. Aðrir flokkar næðu ekki kjöri og myndu Flokkur fólksins og Píratar því hverfa úr borgarstjórn. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár