Olía hækkar um 7% eftir viðvörun Trumps um langt hafnarbann

Út­lit er fyr­ir að hafn­ar­bann Banda­ríkj­anna á ír­önsk­um höfn­um gæti stað­ið mun leng­ur en áð­ur hef­ur ver­ið gert ráð fyr­ir. „Þeir ættu að verða skyn­sam­ir fljót­lega!“ seg­ir Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti um Írani. Olíu­verð hef­ur náð nýj­um hæð­um.

Olía hækkar um 7% eftir viðvörun Trumps um langt hafnarbann
Hækkanir Stór hluti af olíu heimsins flæðir í flutningaskipum um hið lokaða Hormússund. Nú þegar Bandaríkjaforseti hefur gefið til kynna að hafnarbann hans á írönskum höfnum gæti staðið lengi hefur olíuverð náð nýjum hæðum. Mynd: HUSSEIN FALEH / AFP

Olíuverð hækkaði um meira en sjö prósent og náði fjögurra ára hámarki yfir 126 dölum í morgun eftir að Donald Trump varaði við því að hafnarbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir gæti staðið yfir í marga mánuði og fréttir bárust af því að hann fengi tillögur um hugsanlegar nýjar hernaðarárásir.

Þrátt fyrir að stjórnvöld í Teheran hafi lagt fram nýja tillögu í þessari viku um að opna hið mikilvæga Hormússund að nýju, segir Bandaríkjaforseti Íranir séu ekki semja í góðri trú. The Wall Street Journal sagði að hann hefði sagt þjóðaröryggisfulltrúum að búa sig undir langt hafnarbann til að neyða Írani til að hætta við kjarnorkuáætlun sína.

Á fundi með stjórnendum olíufyrirtækja á þriðjudag ræddi Trump viðleitni „til að létta á alþjóðlegum olíumörkuðum og skref sem við gætum tekið til að halda núverandi hafnarbanni áfram í marga mánuði ef þörf …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Leiðtogi Norður-Kóreu ítrekar stuðning við „heilagt stríð“ Rússa
6
ErlentÚkraínustríðið

Leið­togi Norð­ur-Kór­eu ít­rek­ar stuðn­ing við „heil­agt stríð“ Rússa

Rúss­nesk­ir emb­ætt­is­menn heim­sækja Norð­ur-Kór­eu. Á fundi með varn­ar­mála­ráð­herr­an­um hét Kim Jong-un áfram­hald­andi stuðn­ingi í stríð­inu við Úkraínu. Flug­eld­um var skot­ið upp og lát­inna her­manna minnst fyr­ir hetju­dáð. Er því hald­ið fram að þeim hafi ver­ið fyr­ir­skip­að að svipta sig lífi frek­ar en að nást á lífi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár