Verðbólgan mælist nú 5,2 prósent samanborið við 5,4 prósent í síðasta mánuði. Verðbólgan hefur dansað í kringum 5,2 prósent síðan í janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu Hagstofunnar. Þar kemur líka fram að vísitala neysluverðs án húsnæðis hafi hækkað um 4,8 prósent.
Vísitala neysluverðs, sem mælir verðlagsbreytingar, hækkaði þó um 0,81 prósent frá fyrri mánuði. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,8 prósent, verð á bensíni hækkaði um 12,1 prósent en verð á dísel hækkaði um 19,7 prósent. Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 6,1 prósent.


















































Athugasemdir