Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55 prósent milli mánaða í mars og hefur því hækkað á ársgrundvelli um 5,4 prósent. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem verðbólgan hækkar.
Þetta kemur fram í nýjum gögnum Hagstofunnar. Þar segir einnig að í mars hafi vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,67 prósent og hefur verðbólga án húsnæðis á ársgrundvelli því verið 4,9 prósent.
Verðhækkanir í mars skýrast einkum af hækkunum á eldsneyti og matvöru.
Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,7 prósent og hafði 0,11 prósent áhrif á vísitöluna. Þá hækkaði bensínverð um 5,8 prósent og díselverð um 6,9 prósent, með samtals 0,15 prósent áhrif á vísitöluna.
Ný mæling vísitölunnar, sem miðuð er við verðlag í mars, verður notuð til verðtryggingar í maí 2026.















































Athugasemdir