„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“

Full­veldi Íslands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­málum þarf að vera til staðar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tækar breyt­ingar, segir Jökull Sólberg Auð­uns­son, stjórn­ar­maður í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og varar við mögu­leik­anum á her­skyldu innan ESB.

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
Jökull Sólberg Auð­uns­son Stjórn­ar­maður í Til Vinstri við ESB segir það ekki rétt að fram­þróun felist í að ganga í ESB og íhald í að vera utan sam­bands­ins. Mynd: Golli

Samtökin Til vinstri við ESB voru stofnuð í jan­úar með það að mark­miði að standa gegn aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Jökull Sólberg Auð­uns­son, stjórn­ar­maður í sam­tök­unum og fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík, segir mik­il­vægt að sjón­ar­mið vinstri­manna heyr­ist í aðdrag­anda mögu­legrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræður Íslands við ESB. 

„Við erum að sjá Evrópu rata slóð í átt að ófriði og það vantar að þessir Evr­ópu­leið­togar ranki við sér,“ segir Jökull Sólberg og nefnir sér­stak­lega for­seta og vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB. „Það er mik­ill trommu­sláttur í Evrópu í átt að stríði. Ísland á ekk­ert erindi í ESB sem er á leið þangað. Lýð­ræð­is­hall­inn í ESB er annað mál eins og þetta blasir við mér. Ursula von der Leyen og Kaja Kallas eru þarna orðnar sterk­ustu radd­irnar en þær eru ekki inni í þessum þjóðar- og lýð­ræð­isstrúktúr. Þær eru kjörnar á allt annan hátt en þjóð­ar­leið­togar en rödd þeirra virð­ist …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Hvernig v æri að þessi aðili myndi rökstyðja sitt mál betur? Fleiri rök eru með aðild en á móti. Það kom fram í mjög góðri umfjöllun Morgunblaðsins undir ritstjórn Ólafs Stephensens í febrúar 2009 og næstu mánuði á eftir. Þá voru virkilega góð úttekt á kostum og göllum aðildar að Evrópusambandinu. Hvernig væri að skoða þessi mál betur án huglægt's mats sem oft hefur reynst kolrangt? Nauðsynlegt er að skoða þetta mál nánar og sérstaklega hvort einhverjar mikilvægar forsendur hafi breyst síðan fyrir 17 árum.
    Eg er fylgjandi aðild að Evrópusambandinu enda tel eg að lagagrundvöllur að baki se mun nútímalegri en sá íslenski Við erum langt að baki í viðhorfum til mannréttindamála, félagsmála, neytendamál, umhverfismála svo eitthvað sé tínt til. En því miður eru hagsmunaaðilar sem vilja halda okkur utan við Evrópusambandið. Þeir eru á sama róli og einokunarkaupmennirnir forðum sem engu vildu breyta enda afr mikilvægir hagsmunir þeirra í húfi!
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ísland þvert á flokka, Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og núna líka Sjálfstæðisflokkurinn eru orðnir sitt hvert höfuðið á sömu skepnunni, handan veruleika lýðskrum ( post truth populism). Er ekki að verða neitt fullorðið fólk í pólitík lengur bara lukku riddarar. Þetta snýst ekki lengur um hvort maður aðhylltist vinstri eða hægri heldur hvort maður er pre eða post truth ( vantar góð íslensk orð fyrir þessi hugtök).
    2
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Vilta vinstrið og öfga hægrið sameinast. Sorglegt.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár