Kristrún svarar fyrir vextina: „Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt“

For­sæt­is­ráð­herra segir eftir vaxta­hækkun og verð­bólgu­skot að rík­is­stjórnin hafi „freist­ast til að fagna of snemma“. Hún kallar eftir stuðn­ingi þjóð­ar­innar við að „taka ábyrgð á stöð­unni í sam­ein­ingu“.

Kristrún svarar fyrir vextina: „Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt“
Kristrún Frosta­dóttir Segir að bakslag hafi orðið í efna­hags­málum. Mynd: Golli

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, sem hafði fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2024 sagt að Sam­fylk­ingin hefði plan og myndi „negla niður vext­ina og verð­bólg­una“, svarar í dag fyrir þá stöðu að stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru hækk­aðir í kjöl­far þess að verð­bólgan fór upp í 5,2% og er sú hæsta frá því áður en rík­is­stjórnin tók við.

„Ég við­ur­kenni það að eftir lægstu verð­bólgu­mæl­ingu í 5 ár síð­asta haust og 2% lækkun stýri­vaxta þá vorum við von­góð. Og við freist­uð­umst til að fagna of snemma á þeim tíma­punkti,“ segir Kristrún í færslu á Facebook. Hún við­ur­kennir að „nú hafi orðið bakslag“. „Við tökum ábyrgð á þeirri stöðu og herðum okkur enn frekar,“ segir hún.

Hluti af rök­stuðn­ingi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands fyrir vaxta­hækkun nú er mikil hækkun olíu­verðs, vegna stríðs Ísraels og Banda­ríkj­anna gegn Íran, sem er lík­leg til að valda víð­tækum verð­hækk­unum ef hún varir lengur. Önnur rök­semd var hækkun launa á Íslandi.

Að sögn Kristrúnar eru verð­hækk­anir og þar með verð­bólga á breiðum grunni.

„Allir armar hag­stjórn­ar­innar þurfa nú að standa við sitt og vinna að sama marki. Kjara­samn­ingar eru í gildi sem setja launa­þróun skorður. Rík­is­stjórnin mun gera sitt í fjár­mála­á­ætlun og með fyrstu halla­lausu fjár­lög­unum í að verða ára­tug. Við höldum áfram að taka stórar ákvarð­anir til að laga afkom­una,“ segir hún.

Þá vísar hún til lít­ils hag­vaxtar á síð­ustu árum, sem nær ekki umfram mann­fjölgun.

„Við höfum unnið hörðum höndum að atvinnu­stefnu en síð­ustu ár hefur hér mælst 0% hag­vöxtur á mann. Það er ekki sjálf­bært fyrir sam­fé­lag sem leggur áherslu á mikla vel­ferð og góð laun. Næsta hag­vaxt­ar­skeið verður að byggja á öðrum grunni en áherslur síð­ustu ára. Þessu viljum við breyta og erum að breyta með mótun fyrstu atvinnu­stefnu Íslands sem verður kynnt á næstu vikum.“

Kristrún hvetur fyr­ir­tæki til að „halda aftur af álagn­ingu og leggja sitt af mörkum til að stuðla að efna­hags­legum stöð­ug­leika“.

„Það sagði eng­inn að þetta yrði auð­velt. En við getum gert þetta. Með því að taka ábyrgð á stöð­unni í sam­ein­ingu. Við munum vinda ofan af þessu bakslagi og leggja grunn að betra jafn­vægi til lengri tíma í íslensku efna­hags­lífi,“ segir Kristrún.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár