Aftur enginn hagvöxtur á mann á Íslandi

Hag­vöxtur var engu meiri en vöxtur mann­fjöld­ans á Íslandi í fyrra. Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði meira en íslenskum.

Daði Már Kristófersson
Daði Már Krist­ó­fers­son Fjár­mála­ráð­hera segir hag­kerfi Íslands hafa staðnað. Mynd: Golli

Hag­vöxtur leið­réttur fyrir íbúa­fjölgun var eng­inn á Íslandi í fyrra. Síðustu ár hefur hag­vöxtur á mann verið minni á Íslandi en í Evr­ópu­sam­band­inu og oft eng­inn.

Ástæðan er að þjóð­ar­fram­leiðsla hefur lítið auk­ist á sama tíma og mikil mann­fjölgun hefur verið á Íslandi. Í fyrra fjölg­aði íbúum um 1,3% á land­inu og var vöxtur lands­fram­leiðl­unnar sömu­leiðis 1,3%.

Landsframleiðsla á mann hefur minnkað

Í minn­is­blaði fjár­mála­ráð­herra til þjóð­hags­ráðs í síð­ustu viku kom fram að lands­fram­leiðsla á mann hefði verið lægri árið 2024 en níu árum áður, árið 2016. Þar kemur fram áfell­is­dómur yfir íslensku hag­kerfi.

„Af hag­tölum að dæma virð­ist ekki sem hag­kerfið sé í nið­ur­sveiflu heldur eru drif­kraftar tíma­bund­ins hag­vaxtar í rénun og við blasir hag­kerfi sem hefur lítið sem ekk­ert vaxið, leið­rétt fyrir fólks­fjölgun, í hart­nær ára­tug. Útflutn­ingur á hvern íbúa hefur bein­línis dreg­ist saman, og það all­nokkuð,“ segir í minn­is­blað­inu.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Höfum í huga að hagvöxtur er ekki endilega jákvæður. Það getur til dæmis mælst sem hagvöxtur þegar það er verið að spilla náttúrunni með einhverjum framkvæmdum eða þegar fólk notar heilbrigðisþjónustu eða þegar það þarf að reisa varnargarða í kringum Grindavík og fullt af öðrum framkvæmdum sem fara fram í samfélaginu okkar og betra væri að hægt væri að sleppa við að þurfa framkvæma.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Engin furða að verðbólga sé hér á fullri ferð. Launahækkanir frá 5 til 10% og enginn hagvöxtur á mann. Launakostnaður er einu sinni lang stæsti rekstrarliður hagkerfisins. Vonandi fara svo kallaðir aðilar vinnumarkaðarins að horfast í augu við raunveruleikann. Ákveði verkalýðshreyfingin að segja upp samningum í haust til að knýja á um frekari launahækkanir er hún ekki að gera neitt annað en að skjóta sig í fótinn. Þeir verst settu verða ævinlega fyrst undir skriðunni, því miður. Ítrekaðar tilraunir til að leika á staðreyndir tilverunnar verða að teljast fullreyndar.
    1
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Undanfarin áratug hefur öll áhersla verið á að breyta Íslandi í láglaunaland með láglaunaatvinnugreinum eins og ferðaþjónustu. Framleiðni í láglaunaatvinnugreinum er almennt mjög lág og því dregst þjóðarframleiðsla á mann hratt saman og hagsæld íbúa þar með. Ég sá frétt í morgun frá Barcelóna á Spáni. Þar hefur ferðaþjónustan vaxið of hratt og innviðaskuldir eru því orðnar óviðráðanlegar. Samt er fjöldi ferðamanna á hvern íbúa á Barcelona svæðinu bara lítið brot af því sem hann er á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi. Í Barcelóna á því að setja hömlur á vöxt gistirýmis m.a. á AirBnb og innheimta gistináttagjald. Sambærileg gjaldtaka mundi skila mörgum tugum milljarða í ríkiskassann á Íslandi, stórauka þannig þjóðarframleiðslu og hægja á stjórnlausum vexti ferðaþjónustu og innviðaskulda. Þetta mundi líka gjörbreyta stöðunni á fasteignamarkaði til hins betra á skömmum tíma. Á annan tug milljarða mundi líka sparast á ári við framkvæmdir við stækkun Keflavíkurflugvallar, því ekki yrði lengur þörf á gríðarlega hraðri aukningu á afkastagetu flugvallarins ef dregið yrði úr vexti ferðaþjónustunnar. Góð tug milljarða búbót í staðinn í ríkissjóð. Í dag fer meira fé í stækkun Keflavíkurflugvallar á hverju ári en í allar nýframkvæmdir á vegakerfinu utan þéttbýlis. Samantekið þá mundi skapast langþráð svigrúm fyrir ríkissjóð til að efla hálauna þekkingar atvinnugreinar með tilstuðlan eflingar samkeppnis rannsóknar- og nýsköpunarsjóða og með eflingu raungreina (STEM) í skólakerfinu öllu. Þannig yrði vörðuð braut aukinnar þjóðarframleiðslu á íbúa og hratt vaxandi hagsældar.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár