Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
Bæjarstjórarnir og þingmaðurinn Samflokksmenn bæjarstjóranna Valdimars Víðissonar og Rósu Guðbjartsdóttur fengu ráðgjafaverkefni hjá Hafnarfjarðarbæ í þeirra tíð.

Félag í eigu fyrrum oddvita Framsóknarflokks í bæjarstjórn fékk tæpar 7 milljónir króna fyrir ráðgjafastörf fyrir Hafnarfjarðarbæ á árinu 2025. Pólitískur samherji hans var þá nýtekinn við sem bæjarstjóri.

Í svari Hafnarfjarðarbæjar við fyrirspurn Heimildarinnar kemur fram að Valdimar Víðisson bæjarstjóri hafi falið Ágústi Bjarna Garðarssyni, fyrrum oddvita Framsóknarflokks í bæjarstjórn, að vinna verkefni fyrir bæinn. „Leitað var til Vissu ráðgjafar ehf. vegna afmarkaðra verkefna í Hafnarfirði í ljósi reynslu eiganda, Ágústs Bjarna Garðarssonar, af opinberri stjórnsýslu og þekkingar á sveitarstjórnarstiginu, ekki síst í Hafnarfirði.“

Þá hefur Haraldur Sverrisson, fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar fengið tæpar 19 milljónir króna í ráðgjafagreiðslur frá 2023 út september 2025 en Rósa Guðbjartsdóttir, samflokkskona hans og nú þingmaður Sjálfstæðisflokks, var bæjarstjóri Hafnarfjarðar þegar hún undirritaði samning við Harald.

Þetta kemur fram í upplýsingum um verktakagreiðslur vegna þjónustu og ráðgjafar sem voru lagðar fram á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 11. desember í fyrra að ósk fulltrúa Samfylkingarinnar.

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Gunnar skrifaði
    Hef heyrt að þetta jangildi því að kjörnir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði séu að lísa frati á sig sjálfa og segja með þessum samningi að þeir ráði ekki við starf bæjarfulltrúa ráði ekki við það sem þeir þó bjóða sig til ??
    0
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Vanir menn
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Pólitíska spillingu þarf að skoða betur.
    2
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Dæmi um hrikalega spillingu í stjórnmálum á Íslandi.
    2
  • SG
    Sigurlaug Gísladóttir skrifaði
    Eru þetta svona "COMFORTE" greiðslur? ;)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár