Segir NATO hafa gert „heimskuleg mistök“

Banda­ríkja­for­seti ávítar banda­menn fyrir að hafa ekki tekið þátt í vörnum á Persaflóa.

Segir NATO hafa gert „heimskuleg mistök“
Donald Trump Hitti for­sæt­is­ráð­herra Írlands í Hvíta hús­inu í dag. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í dag að NATO væri að gera „heimsku­leg mis­tök“ varð­andi Íran, eftir að aðild­ar­ríki hern­að­ar­banda­lags­ins höfn­uðu að mestu beiðni hans um aðstoð við að opna Hor­mússund aftur fyrir olíu­flutn­ingum.

„Ég tel að NATO sé að gera mjög heimsku­leg mis­tök,“ sagði Trump við frétta­menn þegar hann tók á móti for­sæt­is­ráð­herra Írlands í for­seta­skrif­stof­unni. „Þegar þeir segja að það (Íran) hafi verið ógn, en við ætlum ekki að hjálpa, þá finnst mér þeir vera mjög vit­lausir.“

Trump sagði í við­tali við Financial Times um helg­ina að slæm fram­tíð blasti við NATO ef banda­lags­ríkin kæmu ekki til hjálpar á Persaflóa til að tryggja olíu­flutn­inga.

Banda­ríkin hófu stríð gegn Íran 28. febr­úar með full­tingi Ísraels og hafa gefið mis­mun­andi og stundum mis­vísandi skýr­ingar á stríðs­rekstr­inum. Ein skýr­ingin hefur verið aðgerð til að stöðva mögu­lega þróun Írans á kjarn­orku­vopnum, en áður hafði Trumps sagst hafa gjör­eyði­lagt getu þeirra til þess í loft­árásum í júní í fyrra. Önnur skýr­ingin hefur verið áhersla á stjórn­ar­skipti, en Trump-stjórnin hefur farið fram og til baka með hana. Sú þriðja er skýr­ing Trumps að hann hafi haft á til­finn­ing­unni að Íran myndi gera árás á Banda­ríkin. Fjórða skýr­ingin er að tæki­færi hafi skap­ast til að drepa marga æðstu ráða­menn Írans í einni árás, þar sem upp­lýs­ingar hefðu feng­ist um að þeir væru sam­an­komnir.

Hver sem skýr­ingin er hafði Banda­ríkja­stjórn ekki sam­ráð við banda­menn sína um stríðið, eða þá Banda­ríkja­þing, heldur ein­ungis Ísrael.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    Hvernig væri að bjóða Nato að "taka Kúbu" í stað þess að hoppa ofan í hyldýpið sem Ísrael og BNA eru að skapa við Persaflóa. Það lítur helst út fyrir að það eigi að svelta eyjarskeggja í hel, allavega til undirgefni án þess að SÞ eða aðrir æmti eða skræmti.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár