Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, upplýsir á samfélagsmiðlum að flokkurinn hafi meðal annars heimsótt bandarísku hugveituna Heritage Foundation í október á síðasta ári í sérstakri heimsókn þingmanna flokksins til Washington D.C. Heimildin greindi í morgun frá því að bæði Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafi greitt ráðgjafa Nigel Farage, bandaríkjamanni að nafni Zachary Freeman, fyrir að koma á fundum með bandarísku áhrifafólki á síðasta ári.
Freeman vildi ekki gefa upp við hvaða aðila hann tengdi íslensku stjórnmálamennina en Sigríður upplýsir nú að það hafi meðal annars verið hugveitan sem stóð á bak við hið umdeilda stefnuplagg Project 2025. Þar er sett fram áætlun um hvernig færa má bandarískt samfélag í íhaldssamari átt, frá frjálslyndari og lýðræðislegri gildum, sem margir gagnrýnendur telja andlýðræðislega.
Varaforseti Bandaríkjanna, J.D. Vance, hefur lýst Heritage Foundation sem einni áhrifamestu hugveitu íhaldsmanna frá tíð Ronald Reagan til …


















































Athugasemdir