Hæstiréttur með margar athugasemdir við hryðjuverkamálið

Hæstirétt­ur hef­ur margt að at­huga við máls­með­ferð Lands­rétt­ar í hryðju­verka­mál­inu gegn Sindra Snæ Birg­is­syni og Ísi­dóri Nathans­syni. Mál­ið verð­ur flutt að nýju í heild sinni.

Hæstiréttur með margar athugasemdir við hryðjuverkamálið
Verjendur Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Sindra, og Einar Oddur Sigurðsson, lögmaður Ísidórs. Mynd: Golli

Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar í hryðjuverkamáli gegn Sindra Snæ Birgissyni og Ísidóri Nathanssyni. Rétturinn hefur vísað málinu aftur til Landsréttar til meðferðar og nýrrar dómsuppkvaðningar. Þetta kemur fram í nýbirtum dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp fyrr í dag.

Með dómi Landsréttar höfðu Sindri og Ísidór verið sakfelldir fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum en sýknaðir af ákærum um tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í slíku broti. Hæstiréttur taldi að svo verulegir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins í Landsrétti að ekki yrði hjá því komist að ómerkja dóminn í heild.

Að mati Hæstaréttar lagði Landsréttur ekki réttan skilning í sönnunarkröfur almennra hegningarlaga um tilraun til brots í hryðjuverkahluta málsins.

Hæstiréttur segir að ekki verði leiddar strangari kröfur til huglægrar afstöðu manns þegar metið er hvort um tilraunabrot sé að ræða en almennt gildi um refsiverðan ásetning, að öðru leyti en því að lægsta stig ásetnings eigi vart við þegar einungis séu komin fram undirbúningsverk. Þar hafi Landsréttur gengið of langt með því að leggja til grundvallar strangara mat á ásetningi en lög standi til.

Sömuleiðis segir Hæstiréttur að dómur Landsréttar beri ekki nægilega með sér að lagt hafi verið heildstætt mat á samhengi milli ummæla mannanna tveggja, netleitar, vistunar gagna, aðdáunar á hryðjuverkamönnum, öflunar upplýsinga um sprengjur, dróna, lögreglubúnað og þeirra alvarlegu vopnalagabrota sem þeir voru sakfelldir fyrir.

Einnig er sérstaklega vísað til þess að ekki hafi verið tekin fullnægjandi afstaða til breytts framburðar Ísidórs og vitnis í málinu, né heldur til sérfræðigagna um geðheilsu ákærðu, hættumats greiningardeildar ríkislögreglustjóra og greinargerða Europol. Að mati Hæstaréttar var þetta allt til þess fallið að hafa þýðingu við mat á því hvort sannað væri að Sindri hefði tekið ákvörðun um að fremja þá tegund hryðjuverks sem lýst var í ákæru.

Hæstiréttur taldi því að rökstuðningur Landsréttar hefði verið ófullnægjandi og að ekki hefði farið fram það raunverulega heildstæða mat sem lög krefjast. Þar sem Hæstiréttur getur ekki endurmetið sönnunargildi munnlegs framburðar ákærðu og vitna taldi rétturinn óhjákvæmilegt að ómerkja dóminn og senda málið aftur til Landsréttar.

Í dóminum er einnig vikið að refsiákvörðun Landsréttar vegna vopnalagabrotanna. Hæstiréttur segir óljóst á hvaða sjónarmiðum refsimildun Landsréttar hafi byggst, meðal annars í ljósi þess að ekki verði ráðið af forsendum dómsins hvort tiltekin atriði hafi haft áhrif til þyngingar eða mildunar refsingar.

Niðurstaðan er því sú að allur dómur Landsréttar fellur úr gildi og málið verður tekið fyrir á ný fyrir því dómstigi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
1
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
2
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.
„Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar
5
Menning

„Ég elska þig á ís­lensku“ – end­ur­reisn­ar­mað­ur ís­lensk­unn­ar

„Fá­ir ef nokkr­ir lista­menn hafi haft jafn mik­il áhrif á ís­lenska tungu í sam­tím­an­um og Bubbi Mort­hens,” seg­ir lærð­ur við­mæl­andi í grein þess­ari af til­efni sjö­tugsaf­mæl­is hans. Ann­ar seg­ir hann vera mik­il­væg­an end­ur­reisn­ar­mann ís­lensk­unn­ar. Þenn­an lista­mann þjóð­arsál­ar­inn­ar sem ýms­ir smætt­uðu þó í upp­hafi sök­um meintr­ar skrif­blindu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
1
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár