Blaðamenn Heimildarinnar með tvær tilnefningar til Blaðamannaverðlauna

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dótt­ir, rit­stjóri Heim­ild­ar­inn­ar, og Esther Jóns­dótt­ir blaða­mað­ur eru til­nefnd­ar til Blaða­manna­verð­launa Ís­lands.

Blaðamenn Heimildarinnar með tvær tilnefningar til Blaðamannaverðlauna

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri og Esther Jónsdóttir blaðamaður eru tilnefndar til Blaðamannaverðlauna Íslands. Ingibjörg í flokki viðtal ársins og Esther í flokki umfjöllun ársins.

Ingibjörg er tilnefnd fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Í umsögn dómnefndar er sérstaklega minnst á að Ingibjörg hafi fylgt Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið.

„Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.

Esther er tilnefnd fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatnajökli, eins og segir í rökstuðningi nefndarinnar.

„Esther tekst einstaklega vel að hrífa lesendur með sér, veita innsýn og vekja áhuga á vísindalegum uppgötvunum og sérhæfðum smáatriðum um gróðurfar og áhrif loftslagsbreytinga á samspil jökla og náttúru,“ segir dómnefndin. 

Tilnefningar eru eftirfarandi:

Viðtal ársins 2025

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin

Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.

Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn

Fyrir viðtal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stórmeistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlédræga og hógværa manns og úr verður skemmtilegt og fróðlegt viðtal þar sem Friðrik rekur lífshlaup sitt, viðurkennir að hafa verið undrabarn í skák, segir frá sambandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breytingar sem hafa orðið á skákíþróttinni. Viðtalið er fallegur og fróðlegur minnisvarði um glæstan feril þessa merka skákmanns.

Sunna Sæmundsdóttir, Sýn

Fyrir viðtal í Kompás við Birgi Karl Óskarsson og Iðunni Eiríksdóttur, foreldra Bryndísar Klöru sem lést eftir stunguárás á menningarnótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erfiðustu stundu lífs síns. Þau draga ekkert undan í frásögn af atburðum hinnar örlagaríku nætur en á sama tíma veita þau þjóðinni innsýn í fallegt lífshlaup Bryndísar Klöru. Viðtalið er áhrifamikið og stuðlaði að umræðum og aðgerðum sem beinast að því að vinna að öryggi og velferð ungmenna.

Umfjöllun ársins 2025

Esther Jónsdóttir, Heimildin

Fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatnajökli. Esther tekst einstaklega vel að hrífa lesendur með sér, veita innsýn og vekja áhuga á vísindalegum uppgötvunum og sérhæfðum smáatriðum um gróðurfar og áhrif loftslagsbreytinga á samspil jökla og náttúru.

Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV

Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljósmyndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel.

Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, RÚV

Fyrir hlaðvarpsþáttaröðina Konungssinnar í Kísildal sem fjallar um uppruna þeirra hugmyndafræðilegu sviptinga sem nú eiga sér stað í Bandaríkjunum. Þættirnir eru fræðandi og afhjúpandi og ljóst að þáttastjórnendur hafa lagt í mikla heimildavinnu. Þetta margslungna og flókna umfjöllunarefni er sett fram í lifandi samtalsformi sem gerir efnið aðgengilegt og spennandi.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2025

Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, RÚV

Fyrir umfjöllun í Speglinum um umfangsmikil viðskipti embættis ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtæki sem vann afar fjölbreytileg verkefni fyrir embættið og fékk háar upphæðir greiddar. Með mikilli upplýsingaöflun var dregin upp skýr mynd af málinu. Umfjöllunin varpaði ljósi á meðferð á opinberu fé hjá stórri ríkisstofnun og leiddi til atburðarásar sem endaði með því að ríkislögreglustjóri hætti störfum.

Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Austurglugginn og Morgunblaðið

Fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála sem unnin var í samstarfi  Morgunblaðsins og  Austurgluggans og birtist á báðum. Upplýst var að maður sem banaði hjónum í Neskaupstað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöllunin beindi kastljósinu að stöðu geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og leiddi til þess að yfirvöld ákváðu að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga sem hvorki áttu heima í fangelsi né á hefðbundinni geðmeðferðarstofnun.

Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV

Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.

Blaðamannaverðlaun ársins 2025

Kjartan Kjartansson, Sýn

Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins.

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið

Fyrir ítarlega umfjöllun á mbl.is um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt einstaka þrautseigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrekuðum afhjúpunum, viðamikilli umfjöllun og eftirfylgni með málum. Hún hefur krafið stjórnvöld svara og þannig stuðlað að löngu tímabærum breytingum í þessum viðkvæma málaflokki. 

Þóra Tómasdóttir, RÚV

Fyrir fréttaskýringar í þættinum Þetta helst. Þóra er næm á fréttaefni sem öðrum sést yfir og beitir ríkulegri frásagnargáfu við framsetningu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðluleikarans  Sean Bradley sem hvarf sporlaust frá Íslandi,  hálfíslensku dragdrottningarinnar Heklínu sem fannst látin við dularfullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og unglingsstúlku sem varð fyrir barðinu á ofbeldishópnum 764.

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna 2025 skipa Pálmi Jónasson (formaður), Arndís Þorgeirsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir.

 Verðlaunaafhending fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu í Reykjavík, föstudaginn 13. mars næstkomandi klukkan 18.00. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir
3
Viðskipti

Ís­lensku fyr­ir­tæki líkt við her­tæknifyr­ir­tæk­ið Pal­ant­ir

Stofn­end­ur ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Strat­is vilja ekki taka und­ir nafn­bót­ina „Pal­ant­ir Evr­ópu“ en hug­bún­að­ur þess hef­ur ver­ið not­að­ur af Úkraínu­her í drón­ar­hern­að. Smári McCart­hy, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Pírata, er stofn­andi en sjóð­ur­inn Darkst­ar, sem sér­hæf­ir sig í hern­að­ar­mál­um, fjár­fest­ir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
2
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést
3
Viðtal

Var sett­ur á sam­heita­lyf, steypt­ist út í sár­um og lést

Sig­ur­laug Gísla­dótt­ir, móð­ir manns með hvít­blæði sem lést haust­ið 2023, seg­ir son sinn hafa ver­ið lát­inn þjást að óþörfu þeg­ar hann var tek­inn af frum­lyfi og sett­ur á sam­heita­lyf þrátt fyr­ir að lækn­ir hans hefði ósk­að eft­ir áfram­hald­andi lyfja­skír­teini fyr­ir frum­lyf­ið. Eft­ir að hann skipti um lyf steypt­ist hann út í sárs­auka­full­um sár­um. „Hann bara gat ekki meir,“ seg­ir hún.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
6
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
3
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár