Sér fram á verulegar hækkanir verðtryggðra skulda vegna árásanna

Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins, spyr hvort stjórn­völd ætli að bregð­ast við áð­ur en snar­hækk­andi olíu­verð leiði til tug­millj­arða hækk­ana á höf­uð­stól verð­tryggðra skulda ís­lenskra heim­ila. For­stjóri Skelj­ungs seg­ir ástand­ið munu hafa „gríð­ar­leg­ar af­leið­ing­ar“ því það sé „vand­fund­in sú vara sem ekki er ann­að­hvort fram­leidd eða flutt með olíu.“

Sér fram á verulegar hækkanir verðtryggðra skulda vegna árásanna

Stigmagnandi átök eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hafa á örfáum dögum valdið miklum sviptingum á alþjóðlegum orkumörkuðum. Olíu- og gasverð hefur hækkað hratt, flutningsleiðir raskast og hlutabréfamarkaðir víða um heim hafa lækkað.

Þótt bein áhrif hér á landi séu enn takmörkuð eru vísbendingar um að þróunin geti haft víðtæk áhrif á verðlag og skuldir íslenskra heimila.

„Á meðan heimurinn fylgist með stigmagnandi átökum í Miðausturlöndum sitja íslensk heimili uppi með afleiðingarnar – í formi hækkandi skulda,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, á Facebook.

Hann bendir á að hækkandi olíuverð leiði til hærri flutningskostnaðar og aðföng hækki í verði sem smitist út í verðlag. Þegar neysluvísitalan hækki hækki verðtryggðar skuldir sjálfkrafa. 

Alþjóðlegir markaðir bregðast hart við

Á það sama benti Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs á í samtali við Vísi, þar sem hann sagði að málið snérist um meira en bensínverð á dælunum, „heldur hvaða áhrif þetta …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár