Bandaríkin og Ísrael ráðast á Íran

„Markmið okk­ar er að verja banda­rísku þjóð­ina með því að út­rýma yf­ir­vof­andi ógn­um frá ír­önsku stjórn­inni,“ sagði Don­ald Trump í ávarpi.

Bandaríkin og Ísrael ráðast á Íran

Bandarísk og ísraelsk herlið gerðu samhæfðar loftárásir á skotmörk í Íran í morgun. Sprengingar heyrðust í Teheran og í fleiri borgum landsins, meðal annars í Isfahan og Karaj, samkvæmt írönskum miðlum.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, staðfesti árásirnar í ávarpi sem hann birti í formi myndbands á Truth Social.

„Markmið okkar er að verja bandarísku þjóðina með því að útrýma yfirvofandi ógnum frá írönsku stjórninni, sem er illvígur hópur af mjög hörðu og hræðilegu fólki. Hættuleg starfsemi hennar stefnir Bandaríkjunum, hermönnum okkar, herstöðvum okkar erlendis og bandamönnum okkar um allan heim í beina hættu.“

Umfangsmiklar aðgerðir í undirbúningi

Bandarískur embættismaður, sem ræddi við New York Times með skilyrði um nafnleynd, sagði að árásirnar væru víðtækari en aðgerðir sem framkvæmdar voru fyrr á árinu. Þá beindust sprengjuárásir að þremur kjarnorkutengdum stöðvum í landinu.

Samkvæmt sama embættismani eru árásirnar framkvæmdar af orrustuflugvélum sem taka á loft frá herstöðvum og flugmóðurskipum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvaða mannvirki voru skotmörk að þessu sinni, en talið er að herferðin geti staðið yfir í nokkra daga.

Árásirnar hófust snemma morguns að staðartíma, þegar vinnuvika Írana var að hefjast og skólar í fullum gangi.

Misheppnaðar viðræður

Síðustu daga hafa átt sér stað diplómatískar tilraunir til að draga úr spennu. Fulltrúar Bandaríkjanna og Írans funduðu í Sviss á fimmtudag um framtíð kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran, en fundinum lauk án samkomulags.

Spenna á svæðinu hefur farið vaxandi frá því í janúar, þegar Trump hét því að styðja mótmælendur í Íran. Mannréttindasamtök hafa sagt að þúsundir hafi látið lífið í aðgerðum íranskra stjórnvalda gegn mótmælendum.

Ísrael undirbýr neyðarráðstafanir

Í Ísrael hafa stjórnvöld lýst yfir neyðarástandi og gripið til víðtækra öryggisráðstafana vegna hættu á hefndaraðgerðum. Varnarmálaráðherrann, Israel Katz, staðfesti þátttöku landsins í árásunum í opinberri yfirlýsingu.

Loftvarnasírenur heyrðust víða um landið og tilkynnt var að skólum og vinnustöðum yrði lokað tímabundið. Þá var lofthelgi landsins takmörkuð þar til frekari skýring lægi fyrir á viðbrögðum Írans.

Ekki hafa borist opinberar upplýsingar um mannfall eða umfang tjóns. Yfirvöld í Teheran hafa enn ekki gefið út heildstæða yfirlýsingu um aðgerðirnar, en búist er við að viðbrögð þeirra muni marka næstu skref í átökunum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir
3
Viðskipti

Ís­lensku fyr­ir­tæki líkt við her­tæknifyr­ir­tæk­ið Pal­ant­ir

Stofn­end­ur ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Strat­is vilja ekki taka und­ir nafn­bót­ina „Pal­ant­ir Evr­ópu“ en hug­bún­að­ur þess hef­ur ver­ið not­að­ur af Úkraínu­her í drón­ar­hern­að. Smári McCart­hy, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Pírata, er stofn­andi en sjóð­ur­inn Darkst­ar, sem sér­hæf­ir sig í hern­að­ar­mál­um, fjár­fest­ir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
2
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést
3
Viðtal

Var sett­ur á sam­heita­lyf, steypt­ist út í sár­um og lést

Sig­ur­laug Gísla­dótt­ir, móð­ir manns með hvít­blæði sem lést haust­ið 2023, seg­ir son sinn hafa ver­ið lát­inn þjást að óþörfu þeg­ar hann var tek­inn af frum­lyfi og sett­ur á sam­heita­lyf þrátt fyr­ir að lækn­ir hans hefði ósk­að eft­ir áfram­hald­andi lyfja­skír­teini fyr­ir frum­lyf­ið. Eft­ir að hann skipti um lyf steypt­ist hann út í sárs­auka­full­um sár­um. „Hann bara gat ekki meir,“ seg­ir hún.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
6
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
3
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár