Verðbólga lækkar á evrusvæðinu

Ólíkt Ís­landi er verð­bólga lækk­andi á evru­svæð­inu og mæl­ist þar 1,7% í janú­ar.

Verðbólga lækkar á evrusvæðinu
Verslun Verð á mat og drykk hefur hækkað um 5,6% síðasta árið á Íslandi en 2,6% á evrusvæðinu. Mynd: Golli

Verðbólgan á evrusvæðinu lækkaði niður í 1,7% í janúar úr 2% mánuðinn áður, samkvæmt tölum Eurostat yfir samræmda mælingu verðbólgu. 

Minnst var verðbólgan í Frakklandi (0,4%), Danmörku (0,6) og Finnlandi og Ítalíu (1%).

Á sama tíma var verðbólga í Evrópusambandinu öllu að meðaltali 2%.

Samkvæmt sömu mælingu er verðbólga á Íslandi 4,4%, sem er sú mesta á Evrópska efnahagssvæðinu fyrir utan Rúmeníu.

Verðbólga á Íslandi mældist hins vegar 5,2%, samkvæmt mælingu Hagstofunnar, sem er að nokkru frábrugðin samræmdu evrópsku mælingunni. Vísitala neysluverðs hækkaði um tæplega 1% á einum mánuði í síðustu mælingu íslensku Hagstofunnar, sem samsvarar heils árs verðbólgu í sumum framangreindum Evrópulöndum.

Helst er það lækkun orkuverðs sem dregur úr verðbólgu í Evrópu, en á evrusvæðinu hefur matvælaverð hækkað um 2,6% síðastliðið ár en 5,6% á Íslandi.

Aðferð íslensku Hagstofunnar mælir meðal annars húsnæðiskostnað öðruvísi en sú samræmda evrópska.

Talið er ólíklegt að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækki stýrivexti sína í næstu viku vegna aukinnar verðbólgu.

Ríkisstjórnin ræddi verðbólguvandann á fundi sínum í morgun. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í samtali við fréttastofu Sýnar von á aðgerðum ríkisstjórnarinnar í nokkrum liðum til að berjast gegn verðbólgu. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Mér sýnist að verðbólga hafi alltaf verið til staðar í ýmsum myndum alla tíðfráþvi land byggðist og alveg fram á þennann dag enn aldrei hefur það verið eins erfitt að komast af og einmitt í dag ég er farin að finna fyrir blessaðri verðbólgunni einmitt núna. Húnar farin að glefsa í kálfana á mer vist
    0
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Einn helsti munurinn í aðferð Hagstofunnar hefur verið að ákvarðanir um hækkun eða lækkun vaxta getur aukið eða minnkað mælda verðbólgu..."

    HA??? Gæti greinarhöfundur vinsamlegast útskýrt hvað er eiginlega verið að meina með þessu? Eða þá leiðrétt textann ef um er að ræða misskilning eða villu?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Þegar hægrið vildi skoða ESB, evru og þjóðaratkvæðagreiðslu
2
ÚttektHorft til Evrópu

Þeg­ar hægr­ið vildi skoða ESB, evru og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son vildu skoða ESB-um­sókn og upp­töku evru eft­ir banka­hrun þar til vinstri­stjórn var mynd­uð. Þeir lof­uðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eft­ir að þeir komust í rík­is­stjórn en ann­ar leið­ir nú bar­áttu stjórn­ar­and­stöð­unn­ar gegn henni og hinn stýr­ir Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins.
„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
4
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu