Fáheyrð ákæra vegna hálfs gramms af kannabis

Mað­ur á Ak­ur­eyri sæt­ir ákæru fyr­ir vörslu hálfs gramms af kanna­bis. Sak­sókn­ari seg­ir und­an­tekn­ingu ef ákært er fyr­ir svo litla skammta til eig­in nota. Í þessu til­felli mun mað­ur­inn hafa neit­að að leysa mál­ið með sekt­ar­greiðslu sem áætla má að nemi 54 þús­und krón­um.

Fáheyrð ákæra vegna hálfs gramms af kannabis
Kannabis Maður á Akureyri sem var ákærður fyrir vörslu kannabisefna mun hafa neitað að leysa málið með sektargreiðslu. Mynd: Shutterstock

Litlir neysluskammtar af fíkniefnum og sektir þeirra vegna koma ekki fram á sakavottorðum fólks. Undantekning er að ákært sé í slíkum málum, samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkissaksóknara og lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

Mannlíf greindi frá því nýverið að karlmaður á fimmtugsaldri á Akureyri hefði verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot fyrir að hafa haft 0,56 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni í vörslum sínum þegar lögregla hafði afskipti af honum þann 4. febrúar 2025 á dvalarstað hans.

Halldór Tumi Ólason aðstoðarsaksóknari og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra eru ákærendur í málinu og þess var krafist að ákærði yrði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Miðað við fyrirmæli Ríkissaksóknara um lausn mála með sektargreiðslum má áætla að sekt fyrir vörslu 0,56 gramma af kannabis nemi almennt um 54 þúsund krónum.

„Ástæða þess að viðkomandi aðili var ákærður var sú að hann hafði ekki gengist undir að ljúka málinu með sátt og sektargreiðslu,“ segir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Starfsmenn Bifrastar ósammála um tilurð og tilgang FAB
5
Skýring

Starfs­menn Bifrast­ar ósam­mála um til­urð og til­gang FAB

Starfs­menn stjórn­sýslu og Fé­lags aka­demískra starfs­manna á Bif­röst eru ósam­mála um upp­runa deiln­anna sem stað­ið hafa yf­ir síð­ustu mán­uði. Starfs­menn stjórn­sýslu skól­ans telja fé­lag­ið hafa sprott­ið upp úr reiði vegna auk­inna gæðastaðla en með­lim­ir fé­lags­ins segja það af og frá. Enn er gild van­traust­stil­laga á hend­ur tveim­ur stjórn­end­um skól­ans.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
2
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
5
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Huldu­fé bak við fund Sig­mund­ar Dav­íðs og Re­públi­kana

Jane Mayer, blaða­mað­ur hjá The New Yor­ker, seg­ir millj­arða­mær­inga fjár­magna sam­tök­in Turn­ing Po­int sem borg­uðu Norð­ur­landa­ferð hóps Re­públi­kana að hitta formann Mið­flokks­ins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængn­um. Hún hef­ur rann­sak­að net Char­les Koch sem nær til Ís­lands. Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son hef­ur ekki svar­að því hver greiddi ferð hans.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
5
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
6
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár