Formaður borgarráðs og oddviti Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, Alexandra Briem, biður athafnamanninn Runólf Ágústsson, talsmann Þorpsins Vistfélags, afsökunar á því að hafa ýjað að því að félag hans stæði í lóðabraski í bókun borgarráðs fyrir helgi.
Þetta kemur fram í svari hennar við pósti sem Runólfur sendi á alla borgarfulltrúa borgarinnar fyrir helgi. Heimildin hefur báða póstana undir höndum.
Áréttuðu skaðsemi lóðabrasks
Meirihluti borgarráðs samþykkti á fundi ráðsins á fimmtudag svokölluð aðilaskipti á lóðinni Hakabryggju 12 í Elliðaárvogi, en félag sem Runólfur er í forsvari fyrir, Þorpið vistfélag, fékk lóðina í sínar hendur árið 2023. Fyrir það var lóðin í eigu Árlands ehf., og hafði verið síðan 2007.
Borgarráð samþykkti aðilaskiptin en bókun meirihlutans vakti athygli, ekki síst þar sem áréttuð var skaðsemi lóðabrasks fyrir húsnæðismarkaðinn á Íslandi.
Þannig lögðu borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks …














































Athugasemdir