Frostið flækist fyrir úkraínskum herdrónum

Drónar, sem hafa reynst bæði Úkra­ínu­mönnum og Rússum mik­il­vægir, þola illa það mikla frost sem nú er í Úkraínu. Í frost­inu verða sár líka fljótt ban­væn en ofkæl­ing og kal á útlimum eru algeng.

Frostið flækist fyrir úkraínskum herdrónum
Kuldi Snævi þaktir lampar við bráða­birgða­minn­ing­ar­reit um fallna úkra­ínska og erlenda her­menn á Sjálf­stæð­is­torg­inu í Kænu­garði. Það hefur ekki verið jafn kalt á víg­línu stríðs­ins frá því að það braust út með inn­rás rúss­neska hers­ins, fyrir fjórum árum. Mynd: Sergei SUPINSKY / AFP

Fyrr í vetur var sveit Alis að setja á loft dróna á víg­lín­unni í Úkraínu í miklu frosti, þegar mynda­vélin fraus skyndi­lega. Það kom í veg fyrir að þeir gætu greint stöð­una og brugð­ist við yfir­vof­andi árás Rússa.

Hita­stigið á um 1.200 kíló­metra langri víg­lín­unni hefur aldrei farið jafn lágt, frá því stríð Rúss­lands og Úkraínu hófst fyrir fjórum árum. Kuldanum fylgja aukin vand­kvæði við notkun raf­hlöðuknú­inna dróna, sem gegna lyk­il­hlut­verki í hern­að­ar­að­gerðum beggja fylk­inga.

„Áhrifin á drón­ana okkar eru mjög nei­kvæð,“ sagði Ali, sem bað AFP um að nota kall­merki sitt, í sam­ræmi við reglur hers­ins. „Raf­hlöður tæm­ast hraðar, mynda­vél­arnar og vír­arnir frjósa, þeir ísa bara.“

Bæði rúss­neski og úkra­ínski her­inn eru farnir að nota ein­falda dróna í gríð og erg. Litlir könn­un­ar­drónar kanna stöðu óvin­ar­ins og geta varpað hand­sprengjum á skot­mörk og her­menn, og greina jafn­vel minnstu hreyf­ingu á jörðu niðri, á meðan aðrir eru hlaðnir sprengi­efni og …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár