Runólfur Ágústsson, eiginmaður Áslaugar Guðrúnardóttur, eiganda Þorpsins vistfélags, sendi tölvupóst á alla borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar í dag, föstudaginn 13. febrúar, og segir það ekki gott að vera kallaður lóðabraskari. Hann sendi umvandanir til borgarfulltrúanna í sjö liðum. Tilefnið eru bókanir sem birtust í borgarráði í gær og Heimildin greindi frá.
Meirihluti borgarráðs, sem samanstendur af Samfylkingu, Pírötum og Sósíalistaflokki Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna, bókaði sérstaklega í fundargerð um samþykkt á framsali félags eiginkonu Runólfs, Þorpið 6 ehf., á lóðum félagsins til REIR verka. Í bókun meirihlutans, sem birtist í fundargerð borgarráðs í gær, sagði:
„Það er bagalegt ef íbúðarhúsnæði hækkar í verði vegna framsals lóða sem hækka stanslaust í verði. Húsnæðisuppbygging á að vera á forsendum íbúa og þeirra velferðar.“
Þá sagði einnig í sömu bókun: „Samstarfsflokkarnir eru með í sínum samstarfssáttmála að vinna aðgerðir gegn lóðabraski, …














































Athugasemdir