Ormstunga
Tónlist: Hafsteinn Níelsson. Meðhöfundur tónlistar: Jóhannes Damian R. Patreksson. Tónlistarstjóri: Jóhannes Damian R. Patreksson. Lýsing: Garðar Borgþórsson. Danshöfundur: Liam Steel. Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir. Hljóðhönnun: Brett Smith og Þóroddur Ingvarsson. Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Hljómsveit: Baldvin Hlynsson, Vignir Rafn Hilmarsson, Árni Freyr Jónsson og Sólrún Mjöll Kjartansson.
Lifi íslenski söngleikurinn!
Loksins! Eftir langa bið er loksins kominn frumsaminn íslenskur söngleikur! Ormstunga byrjaði líf sitt sem nemendaverkefni í Listaháskóla Íslands og nær nú fullum þroska á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu. Höfundarnir, Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, eru ungir að árum og stökkva hér fram á sjónarsviðið með metnaðarfullan söngleik. Ormstunga var frumsýnd í janúar og er á hraðri leið með að slá í gegn.
Ormstunga er aðlögun á Gunnlaugs sögu ormstungu sem fjallar um tvö ung skáld, Gunnlaug og Hrafn, sem þrá frama og frægð en stolt og samkeppni leiða þá í gönur. Sagan er kannski íslensk og forn en formið og framsetningin eru af amerískum ættum, í beinan karllegg frá Hamilton eftir Lin-Manuel Miranda sem gerði allt vitlaust fyrir áratug og umbreytti nútímasöngleiknum. Sýningin byrjar af miklum krafti, dalar örlítið um miðbik en blómstrar eftir hlé. Hafsteinn og Ólíver leika sér að tungumálinu, prufa sig áfram í stíl og hitta …












































Athugasemdir