Netverjar óánægðir með Takk krónur: „Lækkið bara verðið“

Nokk­urr­ar óánægju hef­ur gætt á sam­fé­lags­miðl­um með nýtt vild­ar­kerfi Haga, Takk krón­ur. Sum­um þyk­ir af­slátt­ur­inn dræm­ur en aðr­ir hafa áhyggj­ur af per­sónu­vernd­ar­skil­mál­um smá­for­rits­ins. Í not­enda­skil­mál­um kem­ur fram að Hag­ar fletti upp póst­núm­eri og kyn­skrán­ingu not­enda.

Netverjar óánægðir með Takk krónur: „Lækkið bara verðið“
Vildarkerfi Hagar nota kennitölur notenda til að fletta upp póstnúmeri og kynskráningu þeirra í Þjóðskrá Íslands „til að fá innsýn inn í kauphegðun hópa“. Mynd: Golli

Í janúar innleiddu Hagar, sem reka Bónus, Hagkaup og Eldum rétt, vildarkerfið Takk krónur. Það gengur þannig fyrir sig að fyrir tilteknar vörur geta viðskiptavinir áunnið sér Takk krónur sem hægt er að nýta í verslunum Haga. 

Á netinu hefur orðið vart við talsverða gagnrýni á það sem fólki þykir vera „lítill sem enginn afsláttur,“ eins og einn meðlimur hópsins „Vertu á verði - eftirlit með verðlagi“ orðaði það.

Vörurnar kosta fullt verð í búðinni nema fólk sæki sér app og skanni „Takk kort“ í símanum sínum á kassanum. Þá fæst afsláttur af tilteknum „Takk vörum“ sem safnast á aðganginn og hægt er að nýta síðar. Allar upplýsingar um kaupin vistast svo í appinu.

Fjórum dögum eftir að vildarkerfinu var komið á fót var greint frá því að 20 þúsund landsmenn hefðu skráð sig í það. Takk appið var þá efsta á Íslandi í App og Play Store. 

„Lækkið …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bjarni Ólafsson skrifaði
    Maður græðir þá amk að hafa séð heimskulegustu auglýsingaherferð í heimi í sjónvarpinu!
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er magnað hvað almenningur er til í að láta taka sig í bólinu. Það er bara einn höfuð tilgangur með þessarri tækni sem er að hagnast sem mest á almenningi. Svo í leiðinni (af því að það er búið að gefa frjálsan aðgang að rössum okkar) þá eru þarna fínar pólittískar upplýsingar. Tæknin er dásamleg meðan hún er ekki misnotuð.(En hvenær geristþað ekki?$?$)
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár