Hæglát en brosmild heilsar Sikkerninnguaq á föstudagskvöldi í Nuuk þangað sem hún er nýflutt ásamt eiginmanni sínum, nýbyrjuðum í námi í vélvirkjun, og þremur ungum börnum á aldrinum eins til fjögurra ára.
Hún er fædd og uppalin í þorpinu Ittoqqortoormiit, sem er svokallað hundaþorp, en hundarnir eru geymdir á sérstökum stöðum innan þess og hún segist vera smeyk við þá, ekki síst út af börnunum sínum. „Þetta eru ekki hundar eins og þið sjáið á Íslandi.“
Íslendingar komu að tefla
Þau fjölskyldan fluttu beint til Nuuk frá Ittoqqortoormiit, en Íslendingar kunnugir þessu þorpi hafa kallað það ísbjarnaveiðiþorpið. Raunar er um að ræða þorp sem Hrafn Jökulsson heitinn heimsótti gjarnan til að kenna krökkum að tefla. Nokkuð sem Sikkerninnguaq man eftir, þó að hún hafi bara verið barn þá. Hún man reyndar betur eftir vinum hans, en hún prófaði að tefla og vann oftast, hún er enn þá að tefla. …





















































Athugasemdir