Dansarinn Inga Huld Hákonardóttir hleður sjálfri sér upp í gervigreindarveruleika og hverfur af sviðinu í dansverkinu Sérstæðan sem Rósa Ómarsdóttir semur. Verkið var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival fyrir jól en verður nú sýnt aftur dagana 18. og 19. febrúar í Tjarnarbíói.
Rósa segist hafa byrjað að skrifa verkið árið 2018, löngu áður en spunagreind eins og ChatGPT varð hluti af daglegu lífi margra Íslendinga. „Svo tók ég upp þráðinn og þá var ChatGPT að koma á fullu,“ segir hún. „Ég er búin að vera að pæla í þessu lengi, sérstaklega því ég er í dansi og vinn mikið með líkamann minn.“

Titill sýningarinnar, Sérstæðan, er íslenska orðið yfir það sem á ensku er kallað „singularity“ og vísar til þeirrar stundar í mögulegri framtíð okkar þegar …



















































Athugasemdir