Loftárás Ísraels á Líbanon Reykský stígur upp frá stað þar sem loft­árás Ísraela var gerð á suð­ur­hluta úthverfis Beirút í dag, 9. mars 2026. Ísraelar vör­uðu við því að þeir myndu beina spjótum sínum að úti­búum fyr­ir­tækis sem teng­ist Hezbollah. Líbanon dróst inn í stríðið í Mið-Aust­ur­löndum í síð­ustu viku þegar Hezbollah, her­skár hópur studdur af Íran, réðst á Ísrael til að bregð­ast við dráp­inu á æðstaklerki Írans, Aya­tollah Ali Khamenei, í árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels. Mynd: IBRAHIM AMRO / AFP

Ísraelar hafi drepið hálft þúsund og notað ólöglegt efni í árásum á Líbanon

Rík­is­stjórn Líbanon segir Ísraela hafa drepið 486 manns í land­inu síð­ustu daga. Þeir drápu krist­inn prest með skrið­dreka í dag. Mann­rétt­inda­sam­tök segja Ísrael nota ólög­legt efni, sem brennir fólk.

Mann­rétt­inda­sam­tökin Human Rights Watch (Mann­rétt­inda­vaktin) sök­uðu Ísrael í dag um að hafa „ólög­lega“ beitt hvítum fos­fór yfir íbúða­hverfi í bæ í suð­ur­hluta Líbanon í síð­ustu viku.

„Ísra­els­her beitti ólög­lega stór­skota­liðs­skotum með hvítum fos­fór yfir heim­ili þann 3. mars 2026 í bænum Yohmor í suð­ur­hluta Líbanon,“ sögðu mann­rétt­inda­sam­tökin, sem hafa höf­uð­stöðvar í New York, í skýrslu.

HRW bætti við að sam­tökin hefðu „stað­fest og stað­sett sjö myndir sem sýna hvít­fos­fórs­skot springa í lofti yfir íbúða­hverfi bæj­ar­ins og almanna­varna­starfs­menn bregð­ast við eldum á að minnsta kosti tveimur heim­ilum og í einum bíl á því svæði“.

Í svari sínu sagði Ísra­els­her að hann „viti ekki til og geti ekki stað­fest notkun skot­færa sem inni­halda hvítan fos­fór í Líbanon eins og haldið er fram“.

Herinn sagði að stefna sín væri að nota ekki skot­færi sem inni­halda hvítan fos­fór „á þétt­býlum svæðum, með vissum und­an­tekn­ingum“.

Hvítur fos­fór, efni sem kviknar í við snert­ingu við súr­efni, er hægt að nota til að búa til reyk­ský og til að lýsa upp víg­velli.

En skot­færin er einnig hægt að nota sem íkveikju­vopn og geta valdið eldum, hræði­legum bruna­sárum, önd­un­ar­færaskaða, líf­færa­bilun og dauða.

Ísrael – sem hélt áfram árásum á Hezbollah þrátt fyrir vopna­hlé árið 2024 – gerði margar árása­hrinur víðs vegar um Líbanon frá og með síð­ustu viku og sendi land­her­lið inn á landamæra­svæði eftir að sam­tökin, sem studd eru af Íran, réð­ust á landið.

Ísra­els­her hefur síðan ítrekað skorað á fólk sem býr sunnan við Litani-ána, um 30 kíló­metra norður af ísra­elsku landa­mær­unum, að fara burt.

Að minnsta kosti 486 manns hafa fallið í árásum Ísraels, að sögn líbanskra yfir­valda í dag, sem hafa skráð meira en hálfa milljón manna á flótta. Þá hafa 1.313 manns særst, sam­kvæmt sömu heim­ildum sem ekki hafa verið stað­festar sjálf­stætt af óháðum, alþjóð­legum frétta­stofum.

„Ólögleg notkun Ísra­els­hers á hvítum fos­fór yfir íbúða­byggð er mikið áhyggju­efni og mun hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir almenna borg­ara,“ er haft eftir Ramzi Kaiss, rann­sak­anda HRW í Líbanon, í skýrsl­unni.

„Ísrael ætti taf­ar­laust að hætta þess­ari iðju og ríki sem útvega Ísrael vopn, þar á meðal skot með hvítum fos­fór, ættu þegar í stað að stöðva hern­að­ar­að­stoð og vopna­sölu og þrýsta á Ísrael að hætta að skjóta slíkum skotum á íbúða­svæði,“ bætti hann við.

Líbönsk yfir­völd og HRW hafa und­an­farin ár sakað Ísrael um að nota umdeild hvít­fos­fórs­skot í árásum sem yfir­völd segja að hafi skaðað almenna borg­ara og umhverfið.

Landamæra­þorp í LíbanonHér sést þorpið Kfar Kila í Líbanon á mynd sem tekin er í gær frá Ísrael. Hlutar Líbanons eru farnir að minna á Gaza-svæðið eftir árásir Ísraela þar.
Látinn eftir loft­árás ÍsraelsVið­bragðs­að­ilar hylja lík eftir loft­árás Ísraela á Bir al-Abed-hverfið í suð­ur­hluta líbönsku höf­uð­borg­ar­innar Beirút í dag.

Rík­is­frétta­stofa Líbanons greindi frá því í gær að ísra­elskar her­sveitir hefðu gert árásir á bæina Khiam og Tal Nahas, nálægt landa­mær­unum að Ísrael, „með stór­skota­liðs- og fos­fór­skotum“.

Í síð­asta mán­uði sak­aði Líbanon Ísrael um að úða ill­gres­iseyð­inum glýfosati, eða Roundup, Líbanon­megin við sam­eig­in­leg landa­mæri þeirra, og Joseph Aoun for­seti for­dæmdi það sem „glæp gegn umhverf­inu“.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti gaf hins vegar út for­seta­til­skipun á dög­unum sem verndar birgðir Banda­ríkja­hers af hvítum fos­fór, ásamt eitr­inu Roundup sem veldur krabba­meini.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Og allir morðingjarnir bera fyrir sig trú sinni, USA, Ísrael og Putin.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár