Rússnesk stjórnvöld vöruðu við því í dag að „hættulegar“ aðstæður væru framundan í heiminum, þar sem síðasti kjarnorkusamningur Bandaríkjanna og Rússlands rennur út í þessari viku.
„Eftir örfáa daga verður heimurinn í hættulegri stöðu en nokkru sinni fyrr,“ sagði talsmaðurinn Dmitry Peskov, nokkrum dögum áður en Nýi START-samningurinn rennur út. Fyrsti START (Strategic Arms Reduction Treaty) var undirritaður 1991 af Bandaríkjunum og Sovétríkjunum, skömmu áður en þau síðarnefndu leystust upp. Samningurinn setti þak á eign kjarnorkuodda við 6.000 og langdrægar eldflaugar og sprengjuþotur við 1.600.
Stjórn Vladimirs Pútín forseta, sem hefur boðist til að framlengja nokkur ákvæði samningsins, bætti við að tvö stærstu kjarnorkuveldi heims „verða eftir án grundvallarskjals sem myndi takmarka og hafa eftirlit með þessum vopnabúrum.“

Einn herskáasti embættismaður Rússlands, fyrrverandi forsetinn Dmitry Medvedev, varaði í gær sömuleiðis við stöðunni. Medvedev skrifaði undir Nýja START samninginn sem forseti árið 2010. Hann sagði að þetta myndi „flýta dómsdagsklukkunni“.
„Ég vil ekki halda því fram að þetta muni þegar í stað leiða af sér hörmungar og kjarnorkustríð, en allir ættu að óttast þetta,“ sagði Medvedev í viðtali við rússneskan stríðsbloggara.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið til kynna að hann muni láta samninginn renna út. „Ef hann rennur út rennur hann út,“ sagði hann í samtali við New York Times. „Við gerum bara betri samning“.
Bandaríkin hafa viljað að Kína, sem hefur stóreflt kjarnorkuvopnabúr sitt, taki þátt í samningnum, en stjórnvöld þar hafa ekki lýst á huga á því, enda stefna þau að því að jafna Rússa og Bandaríkjamenn.













































Athugasemdir (1)