Karlmennskudýrkun og vaxandi kvenhatur í Bandaríkjunum

Eftir að fulltrúi ICE-sveitar Trumps drap konu hefur MAGA-hreyfingin beint spjótum sínum að frjáls­lyndum konum.

MAGA-hreyfingin
MAGA-hreyf­ingin Stuðn­ings­menn Banda­ríkja­for­seta hafa horft til óskil­greindrar, mik­il­feng­legrar for­tíðar og vilja sumir þeirra vinda ofan af rétt­inda­bar­áttu kvenna. Mynd: Shutterstock

Fram­sæknar hvítar konur hafa lengi verið skotspónn MAGA-hreyfingar Donalds Trumps forseta, en árásir á þennan lýðfræði­lega hóp hafa orðið sérstak­lega grimmilegar undan­farnar vikur.

Fjölmargir íhalds­samir álits­gjafar hafa brugðist við drápi innflytjenda­lögreglu­manns á Rene Good, 37 ára bandarískri konu í Minneapolis sem mótmælti hörku gegn innflytjendum, með því að rægja hana.

Útvarps­maðurinn Erick Erickson bjó til skamm­stöfun til að lýsa Good – „AWFUL“, eða Affluent White Female Urban Liberal (vel stæð, hvít, frjáls­lynd kona úr þéttbýli).

„Hvítar frjáls­lyndar konur eru krabba­mein fyrir þjóðina. Þær hafa engin raun­veruleg vandamál, svo þeim leiðist“ og taka upp baráttu annarra, skrifaði hægri­sinnaði grín­istinn Vincent Oshana á X.

„Þær vilja bara finnast þær vera mikil­vægar.“

Dálka­höfundurinn David Marcus vísaði á meðan með fyrirlitningu til kvenkyns aðgerða­sinna, eins og Good, sem mótmæltu aðgerðum Trumps í innflytjenda­málum sem „skipulagðar klíkur af vínmömmum“.

Kosningaréttur kvenna „harmleikur“

Árásirnar koma samhliða tvíþættri sókn á hægri væng bandarískra stjórn­mála – gegn nútíma femínisma og með upprisu karlmennskuímyndar.

Bylgja tjáningar gegn réttindum kvenna reis strax eftir kjör Donalds Trump Bandaríkja­forseta, með 4600% fjölgun samfélagsmiðlafærlsna með yfir­lýsingum eins og „þinn líkami, mitt val“ og „komdu þér aftur í eldhúsið“ fyrsta sólar­hringinn eftir kosninga­sigurinn í nóvember 2024.

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Um að gera að troða fylla jörðina af fólki þannig að allir enda að lokum með því að troða hvort öðru um tær í orðsins fyllstu merkingu
    1
  • Greg Hill skrifaði
    Lögreglumennirnir, allir karlar, ráðast fyrst á konur í báðum skotárásunum, og aðeins á manninn (Alex Pretti) þegar hann ver aðra þeirra. Aðrar frásagnir sjónarvotta lýsa endurteknu ofbeldi og móðgandi orðbragði gagnvart konum af hálfu lögreglunnar. Nokkur tengd atriði í þessari grein í Guardian frá 1. febrúar (https://www.theguardian.com/us-news/ng-interactive/2026/feb/01/white-supremacy-women-renee-good-ice-killing).
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er þetta ekki það sem gerir Bandaríkin mikil að nýju, að mati aðstandenda? Sama með þá, sem ætla að gera Ísland ,,mikið" aftur, og hafa m.a. útbúið húfur þess efnis að fyrirmynd hinna miklu.
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þessi svokallaða karlmennskuímynd er ekkert annað en minnimáttarkennd. Þessir aðilar eru svo litlir og léttvægir af getu og hæfileikum, þannig að eina leiðin fyrir þá er að ýta öðrum niður svo þeir sýnist stærri. Ótrúleg ranghugmynd að mínu mati því merkilegasta og mikilvægast fólkið sem hvert samfélag á eru þeir sem ýta öðrum upp, hugsa um heildina en eru ekki fastir í sjálfhverfu egói. Það er stórt fólk að mínu mati en þessir kúskar eru smámenni. Karlmaður sem ýtir konu upp verður bara meiri en ekki minni fyrir vikið.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár