Billy Long biðst afsökunar: „Það var engin alvara í þessu“

Billy Long, sem Donald Trump hefur til­nefnt sem sendi­herra á Íslandi, segir enga alvöru að baki ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Banda­ríkj­anna. Ummælin hafa vakið reiði meðal Íslend­inga.

Billy Long biðst afsökunar: „Það var engin alvara í þessu“
Billy Long, sendi­herra­efni, baðst afsök­unar.

Billy Long, sendi­herra­efni Donalds Trump fyrir Ísland og fyrr­ver­andi þing­maður í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings, hefur beðist afsök­unar á ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Banda­ríkj­anna þar sem hann yrði rík­is­stjóri. 

„Það var engin alvara í þessu. Ég var með fólki sem ég hafði ekki hitt í þrjú ár og þau voru að grín­ast með að gera Jeff Landry [sér­stakan erind­reka Banda­ríkj­anna gagn­vart Græn­landi] að rík­is­stjóra Græn­lands. Þau fóru þá að grín­ast um mig og ef ein­hver tók því illa biðst ég afsök­unar,“ sagði Long við mið­il­inn Arctic Today.  

Banda­ríski mið­ill­inn Politico greindi frá ummælum Long í gær en þau voru látin falla í óform­legu tali hans við þing­menn í banda­ríska þing­inu. 

Undirskriftasöfnun gegn Long

Fyrr í dag greindi RÚV frá því að utan­rík­is­ráðu­neytið hefði haft sam­band við banda­ríska sendi­ráðið vegna ummæl­anna. Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, gagn­rýndi tal Longs harð­lega í störfum þings­ins fyrr í dag og sagði …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Hópurinn í kring um T. segir eitt og annað og oft mótsagnakennt. Við slíkar aðstæður ber allt að taka alvarlegt sem er sagt.
    Auk þess er það í millitíðinni þekkt bragð hægri manna að slengja fram einhverju og snúa svo út úr því og kalla það "bara grín".
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það er engin iðrun í þessari afsökunarbeiðni, enda fullkomlega óviðeigandi af tilvonandi sendiherra að vera með aulabrandara af þessu tagi. Maðurinn á ekkert erindi til Íslands.
    2
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    This wasn't by accident or a joke! These thoughts originate from the prevailing "Zeitgeist" in today's US! In this context there is a lot of talk all around! Better take it serious and be prepared!
    2
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Hann lítur út fyrir að vera með greindarvísitölu upp á um 40, borðar mikið af kartöfluflögum og hendir tómum bjórdósum sínum í vegkantinn... Það var engin alvara í þessu, ég var bara að grínast.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár