Kristrún fundaði með Ursulu

Blikur á lofti í örygg­is­málum ræddar á fundi Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins.

Kristrún fundaði með Ursulu
Kristrún og Ursula Rík­is­stjórn Íslands stefnir að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort hefja eigi aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu. Mynd: Forsætisráðuneytið

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra átti í dag vinnufund með Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, þar sem rætt var um stöðu alþjóða­mála, örygg­is­mál, efna­hags- og tolla­mál, Evrópska efna­hags­svæðið og sam­starf Íslands við sam­bandið.

„Við ræddum meðal ann­ars los­un­ar­heim­ildir í flugi og sér­staka und­an­þágu Íslands sem rennur út í lok árs,“ segir Kristrún í yfir­lýs­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu. „Þetta er afar mik­il­vægt hags­muna­mál fyrir íslenska flug­rek­endur og við áttum upp­byggi­legt sam­tal um hugs­an­legar lausnir fyrir Ísland,” segir for­sæt­is­ráð­herra.

Í dag eiga danski og græn­lenski utan­rík­is­ráð­herr­ann fund með utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­seta Banda­ríkj­anna, í skugga hót­ana Banda­ríkja­for­seta um að yfir­taka og inn­lima Grænland.

Kristrún ávarpar það í yfir­lýs­ing­unni.

„Öryggis-og varn­ar­mál í álf­unni og ekki síst hér á Norð­ur­slóðum eru ofar­lega í huga allra og áttum við einnig hrein­skiptið sam­tal um stöð­una eins og hún blasir við núna. Við árétt­uðum báðar afdrátt­ar­lausan stuðn­ing okkar við Grænland og Danmörku,” segir Kristrún.

„Sam­skipti ESB og Íslands standa á afar traustum grunni og í ljósi aðstæðna er mik­il­vægt að halda áfram öfl­ugri hags­muna­gæslu við for­svars­menn fram­kvæmda­stjórn­ar­innar og aðild­ar­ríkja ESB.“

Að sögn Stjórn­ar­ráðs­ins er vinnufund­ur­inn í dag liður í áfram­hald­andi sam­tali um sam­starf Íslands og ESB en for­sæt­is­ráð­herra átti á síð­asta ári tvo fundi með for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, þann fyrri í Brussel í apríl og þann síð­ari á Íslandi í júlí.

Stefnt er að því að ljúka við að skrifa undir vilja­yf­ir­lýs­ingu með ESB um aukið sam­starf í varnar- og örygg­is­málum, sam­kvæmt orðum Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra á dög­unum. Und­ir­rit­un­inni var hafnað af hálfu Íslands eftir að ESB ákvað að fella EES-ríkin, þar á meðal Ísland og Noreg, undir vernd­ar­tolla á kís­il­járn.

Ekki kemur fram hvort það hafi verið rætt á fundi Kristrúnar og Ursulu.

Í dag hefur verið greint frá því að Danir hafi sent her­lið til æfinga á Græn­landi og ætli sér aukna við­veru þar, ásamt því að hafa leitað til Evr­ópu­þjóða um þátt­töku í vörnum Græn­lands, í kjöl­far end­ur­tek­inna yfir­lýs­inga Banda­ríkja­for­seta um inn­limun lands­ins í Banda­ríkin á for­sendum þess að öryggi sé ábóta­vant.

Kristrún sagði í við­tali við Heim­ild­ina á föstu­dag að Íslend­ingar gætu „treyst á Banda­ríkin“ í örygg­is­málum.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Why should Iceland get privilege when it comes to CO2 emissions thanks to aviation, incl. numerous private jets (!) flying in and out!? The emissions are already increasing compared to times bevor the Corona pandemic, in Iceland and globally! The climate is getting worse by the day!
    The United Nations recognizes 39 so-called small developing island states. If they were all getting the same privileges as Iceland does the climate will get worse beyond control!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár